Litli Bergþór - des. 2017, Blaðsíða 8
8 Litli-Bergþór
Molarnir er æskulýðsfélag kirknanna í Skál-
holtsprestakalli, en þær eru Torfastaðakirkja,
Skál holts dómkirkja, Haukadalskirkja, Bræðra-
tungu kirkja, Mosfellskirkja í Grímsnesi, Stóru-
Borgarkirkja, Búrfellskirkja, Miðdalskirkja, Úlf-
ljótsvatnskirkja og Þingvallakirkja. Starfið er
fyrir unglinga á aldrinum 13 – 16 ára.
Fundir eru haldnir á mánudögum í
Skálholtsbúðum á milli kl. 20 og 22 og að
sjálfsögðu eru allir velkomnir. Á fundunum að-
hafast krakkarnir ýmislegt og reynt er að höfða til
allra þegar kemur að dagskrá fundanna. Það sem
hefur verið á dagskrá hjá okkur í vetur eru meðal
annars hópleikir, spil, myndbandsgerð, bíófundur,
subbufundur og traustsleikir. Í Molastarfinu
nálgast unglingarnir trúna með skemmtilegum
og uppbyggilegum hætti. Margir fundir eru
framundan með fjölbreyttri og skemmtilegri
dagskrá.
Helgina 20. – 22. október fórum við saman á
Landsmót Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar,
ÆSKÞ, sem haldið var á Selfossi. Krakkarnir
söfnuðu sér að stórum hluta sjálfir fyrir þátttöku
sinni í mótinu með fjáröflun sem haldin var í
tengslum við það. Þar komu saman um það bil
250 krakkar frá æskulýðsfélögum um allt land.
Molarnir kynntust krökkum frá hinum og þessum
landshlutum. Meðal þess sem var á dagskrá
mótsins voru kvöldvökur, bænastundir, hópastarf,
ratleikur, umhverfisfræðsla og hæfileikakeppni.
Molarnir fara í tvö ferðalög á ári. Fyrra
ferðalagið er Landsmótið sem er nýafstaðið.
Staðsetning mótsins breytist á hverju ári,
og er það gert til þess að krakkarnir fái að
kynnast ýmsum stöðum á landinu, t.a.m.
verður næsta landsmót haldið á Egilsstöðum.
Seinna æskulýðsmótið er Febrúarmótið. Það er
haldið árlega í Vatnaskógi og er fyrir unglinga
í æskulýðsfélögum á höfuðborgarsvæðinu, á
Selfossi og í Skálholtsprestakalli.
Um starfið í ár sjá Konný Björg Jónasdóttir og
Bríet Inga Bjarnadóttir, en einnig er Alexander
Danielo Alcivar leiðtogi í Molunum.
Meðfylgjandi eru ljóð sem krakkarnir sömdu
sjálfir um starfið.
Molarnir æskulýðsfélag
Aftari röð: Helga, Snæfríður, Lísa, Salka Kristín, Sindri, Ási, Jóna og Guðrún. Fremri röð: Sólrún og Svanur.
Konný Björg Jónasdóttir: