Litli Bergþór - des. 2017, Síða 14
14 Litli-Bergþór
Þemaverkefni hjá börnum á Krummaklettum,
sem eru á aldrinum 2 1/2 – 5 ára, eru tröll.
Á föstudögum tökum við fyrir og skoðum nánar
söguna um okkar mann hann Bergþór sem lifði í
helli í Bláfelli. Hrefna er líka í þeirri sögu. Þetta
þemaverkefni stendur yfir á haustönn 2017.
Við styðjumst við söguna eins og hún er sögð í
þjóðsögum Jóns Árnasonar (heppin vorum við
að einhver skráði sögu hans). Þegar við segjum
söguna nefnum við líka þann möguleika að
sumir segi söguna öðruvísi, því hún er líka til í
munnlegri geymd hér í Tungunum.
Í þemaverkefninu er reynt að dýpka skilning
barnanna og fá þau til að tjá sig um þemað í
leik og listum, þannig að opnist fyrir þeim nýr
heimur. Hlutverk okkar kennaranna er síðan að
kynna verkefnið fyrir börnunum, vekja áhuga
þeirra og fá þeim mismunandi efnivið til að túlka
upplifun sína.
Sagan af Bergþór er stórmerkileg saga um mann
eða hálftröll sem ég hvet ykkur til að lesa.
Unnið með verkefnið:
Börnin voru spurð, áður en vinnan hófst, hvað
þau vissu mikið um Bergþór og þau teiknuðu
mynd af honum. Til að meta árangur af þemanu
munum við biðja þau að teikna aðra mynd af
Bergþór í lok tímabilsins.
Bergþór í Bláfelli
í leikskóla
Við höfum farið yfir söguna og sagt hana með
leikmunum og teiknað kort af ferð Bergþórs
niður á Eyrarbakka. Við höfum skoðað fjallið
hans, Bláfell og leikið tröll í útivist.
Við höfum velt fyrir okkur hversu stór Bergþór
og Hrefna hafi verið og teiknað þau í réttri stærð.
Við höfum leyft þeim börnum sem vildu smakka
mysu sem Bergþór fannst best að drekka á göngu
sinni um sveitirnar. Flestum börnunum líkaði
drykkurinn, en þó ekki öllum.
Við höfum prentað út myndir af þeim hlutum
sem sagðir eru frá Bergþór og haft þau í hæð
barnanna svo þau geti skoðað þær.
Við höfum talað um söguna í samverustund og
þar eru börnin sammála um að Bergþór hafi
verið góður og að sparifötin hans hafi verið blá.
Sigrún Elfa Reynisdóttir:
Emilía Ísold, Aðalbjörg, Kristjana Karen,
Laufey Sól, Ásgerður.
Torfi, Ásgerður, Sigurrós, Kristbjörg, Laufey Sól.