Litli Bergþór - dec 2017, Qupperneq 20
20 Litli-Bergþór
Þegar við Þorsteinn (Sverrisson, eiginmaðurinn)
vorum um þrítugt ákvað Björn bóndi í Úthlíð
að losa sig við kýrnar og breyta hluta af
Alsholtstúnunum í golfvöll. Fékk hann Gísla
bróður sinn til að hanna völlinn en Gísli var
landskunnur blaðamaður, myndlistarmaður og
kylfingur.
Ég fékk þá flugu í höfuðið að gefa eiginmanninum
notað golfsett sem ég keypti af vinnufélaga mínum
og sjálf fékk ég nokkrar kvenkylfur með – svona
svo ég gæti nú byrjað eitthvað.
Við skunduðum niður á golfvöll og Gísli kenndi
okkur undirstöðuatriðin í golfinu. Hann sagði við
mig (hafði örugglega ekki neina trú á frænku sinni
í íþróttinni) „Það er lang mikilvægast að vera
glæsilegur á teig – það sér svo enginn hvernig
gengur að spila brautina.“
Eftir þetta var ekki aftur snúið – við náðum strax
ótrúlega góðum tökum á kylfunum og boltinn
flaug hægt og sígandi lengra og fór beinna og í
færri höggum ofan í holuna.
Að byrja í golfi
Það er ekki dýrt að byrja í golfi, oft er hægt að kaupa
notað golfsett á mjög viðráðanlegu verði og það
er gott að taka grunnnámskeið hjá viðurkenndum
PGA golfkennara, en það er jafnan best að taka
fyrstu skrefin undir handleiðslu fagmanns.
Síðan er að fara á æfingasvæðið í golfklúbbnum
og byrja að æfa sig og vinna í þeim þáttum sem
Hjördís Björnsdóttir:
Hér er golf um golf
golfkennarinn leggur fyrir. Einnig er gott að horfa
á golfkennslumyndbönd á Youtube til að festa
helstu handtökin í minni sér.
Besta golfkennslan er að mæta á golfvöllinn og
skella sér með reyndum kylfingum í rástíma, eða
skrá sig í golfmót. Það krefst mikils aga að spila
með ókunnugum og reyndum kylfingum. Einnig
er gott að læra af þeim sem hafa spilað lengur,
tileinka sér góða siði og kynnast grunnreglum
íþróttarinnar. Reyndir kylfingar hafa líka oft
gaman af því að gefa af sér og kenna nýliðum
reglur og sýna þeim góða takta. Þá á byrjandinn að
muna að hrósa og fagna þegar þeim reynda gengur
vel. Sjóaðir kylfingar hrósa mikið nýliðanum ef
hann fylgist með leiknum og er röskur og heldur
leikhraða – það er reyndar mikilvægt atriði
íþróttarinnar.
Forgjöf og árangur
Forgjöfin er sá partur af leiknum sem gerir hann
dálítið ávanabindandi og með því að fylgjast
með höggunum sínum frá byrjun, er hægt að
sjá hvernig árangurinn kemur hægt og sígandi.
Þegar kylfingur gengur í golfklúbb fær hann 54
í byrjunarforgjöf. Það þýðir að kylfingur sem
spilar golfvöll sem er par 72 má spila völlinn á 54
auka höggum eða þremur höggum yfir pari. Þá er
reikningsdæmið þannig: 72 högg er parið +54 yfir
pari þýðir að kylfingur með hámarksforgjöf spilar
völlinn á 126 höggum. Svo er að byrja að reyna
1. braut á Úthlíðarvelli, sumar 2003. Golf á Úthlíðarvelli 2017.