Litli Bergþór - dec 2017, Qupperneq 21
Litli-Bergþór 21
að spila á þessum höggafjölda og þá byrjar fjörið.
Það er ótrúlega gaman að fylgjast með forgjöfinni
lækka, sérstaklega á golfmótum með góðum
félögum. Kylfingur sem gengur í golfklúbb fær
aðgang að vef Golfsambands Íslands www.golf.is
og skráir höggin sín þar inn. Þá reiknar vefurinn
út hversu marga punkta kylfingur vinnur sér
inn. Á Íslandi notum við svokallað Stableford
punktakerfi til að mæla árangurinn. Þá fáum
við fleiri punkta fyrir að fara á færri höggum.
Forgjöfin gerir það að verkum að allir geta spilað
saman á jafnréttisgrundvelli. Byrjandi og sá sem
lengra er kominn keppa með forgjöf. Golfið spyr
ekki heldur um aldur eða kyn, það geta allir leikið
sér saman ef þeir eru með forgjöfina rétt skráða.
Góður félagsskapur í skemmtilegum
golfklúbbi
Það er mjög gefandi og skemmtilegt að vera
félagi í golfklúbbi, því það er skemmtilegt að
vera í félagsskap með fólki sem hefur sama
áhugamál og maður sjálfur. Við spilum saman
bæði á golfmótum og þegar við bókum rástíma á
www.golf.is. Einnig eiga klúbbfélagar það til að
mæla sér mót á vellinum, taka skemmtilegan leik
og setjast svo inn í skála, eða bjóða heim til sín
og eiga góða stund saman eftir leik. Stundum er
farið í „golfferðir“. Þá taka félagarnir sig saman
og keyra á nærliggjandi golfvöll og eiga saman
gleðistund. Að golfinu loknu er haldið áfram
að skemmta sér og þá er farið yfir hverja braut
fyrir sig og oftar en ekki rætt um allt það sem fór
úrskeiðis. Þarna ættum við þó kannski að gera
meira af því að monta okkur af því sem gekk vel.
Ferðast með golfsettið
En það allra skemmtilegasta við golfið er að
ferðast með settið. Við hjónin höfum oft farið í
góðar golfferðir, bæði með vinum og svo tvö
saman.
Við höfum ferðast víða með settin okkar, eða
fengið leigusett. Fórum einu sinni í ferð um Ítalíu,
komum við í Feneyjum og tókum vatnaTaxa
(gondól) með golfsettin með okkur. Það var mjög
fyndið, en engu að síður eina leiðin til að skoða
Feneyjar og spila golf í næsta þorpi.
Við höfum farið í margar ferðir til Skotlands,
Englands og Spánar og við höfum spilað í
Bandaríkjunum, í Flórída, New Jersey, South
Carolina og Californiu. En núna á þessu ári
spiluðum við í Grikklandi og Tékklandi (við
borgina Prag). Það má segja að Gríski golfvöllurinn
á Cost Navarino sé núna uppáhaldsvöllurinn
okkar því ég náði þar þeim einstaka árangri að
fara holu í höggi. Hér er boltinn í holunni – eftir eitt högg á The Bay Cors í Grikklandi.
Ég og Hrönn Greipsdóttir staddar í golfi á glæsilegum golfvelli í
Monterey í Californíufylki í Bandaríkjunum.