Litli Bergþór - Dec 2017, Page 24
24 Litli-Bergþór
Páll M. Skúlason:
„Hvert ertu að fara, pabbi?“
„Ég þarf að hitta skattakallinn“.
„Megum við koma með? Gerðu það?“
„Koma með? Ja, þá er eins gott að þið verðið stilltir“.
„Af hverju? Er skattakallinn eitthvað hættulegur?“
„Nei, nei, en hann setur stundum óþæga krakka í
skattholið“.
Það voru þæg börn sem fengu að fylgja föður sínum
til skattakallsins þennan dag. Í barnshuganum varð til
mynd af gluggalausri, ljóslausri, læstri kytru: skattholi
skattakallsins.
Auðvitað er þetta stutta samtal ekki orðrétt eins
og það hljómaði fyrir um það bil 55 árum. Faðir
minn þurfti að koma einhverjum pappírum til
hreppstjórans í tengslum við skattframtal, en þau
mál voru þá í höndum þess embættismanns, en ekki
einhvers andlitslauss skrifstofubákns í Reykjavík.
Hreppsstjórinn á þessum tíma var sá ágæti maður,
Erlendur Björnsson á Vatnsleysu. Í fjölskyldunni,
bar hann ávallt starfsheitið „skattakallinn“ og naut
óttablandinnar virðingar í samræmi við það.
Það var ekki fyrr en allmörgum árum seinna að ég
Skatthol skattakallsins
áttaði mig á því að til var húsgagn sem
kallaðist skatthol. Þetta húsgagn var ekki ólíkt
kommóðu/dragkistu en var einnig skrifborð
og hirsla fyrir ritföng, pappír, sendibréf og
ýmsa persónulega muni eigandans. Það kann
vel að vera að hreppstjórinn hafi átt húsgagn
af þessu tagi.
Þrátt fyrir að Gylfi og Pétur hafi endanlega lagt
hlustunarpípurnar á hilluna, heldur lífið áfram á
heilsugæslunni í Laugarási. Undirritaður er að
klára fyrsta árið sem héraðslæknir í Uppsveitum
Árnessýslu og þá eru bara 29 ár eftir til að jafna
met áðurnefndra höfðingja. Erfiðlega hefur
gengið að fá lækna til að ráða sig fast á stöðina
en nú horfum við vonandi fram á betri tíð hvað
það varðar. Andri Kristinsson sérfræðingur í
heimilislækningum hefur ráðið sig í eitt ár til
að byrja með frá og með næstu áramótum, en
hann hefur verið í afleysingum hér í haust og
líkað vel. Hann mun væntanlega setjast að í
læknabústaðnum í Laugarási ásamt konu sinni
og barni eftir áramótin. Þá verður einnig auglýst
eftir sérnámslækni í heimilislækningum frá
áramótum og takist að fá unglækni til okkar þá
verður læknamönnun tryggð næstu árin. Í vor og
svo aftur nú í haust var bara einn læknir við störf
og það dugar engan veginn
og bið eftir tímum varð allt
of löng. Í sumar fengum
við tvo læknanema til
starfa og mun annar þeirra,
Kristinn Agnarsson frá Jaðri
í Hrunamannahreppi, koma
aftur til okkar í nóvember og
desember. Væntanlega mun
bið eftir læknatímum því
styttast fljótlega. Hvað hjúkrunarþáttinn varðar
þá er full mönnun í öllum stöðugildum sem við
höfum úr að spila. Mikil aukning hefur orðið á
heimahjúkrun síðast liðna mánuði og sér ekki
fyrir endann á þeirri þróun og því er ljóst að þörf
er á fleiri stöðugildum hjúkrunarfræðinga sem
fyrst.
Sigurjón Kristinsson
héraðslæknir í Laugarási.
Starfið á heilsugæslustöðinni í Laugarási