Litli Bergþór - des. 2017, Síða 29

Litli Bergþór - des. 2017, Síða 29
Litli-Bergþór 29 Veðurannáll. Veðrið í sumar var gott og öfgalaust, hvorki heitt né kalt, vott né þurrt. Oft skúraveður og hiti á bilinu 7-17°C, en bjartir og fallegir dagar inn á milli. Góður þurrkur í lok júlí og eins komu fallegir dagar í ágúst. Haustið var einnig milt og gott, þó flesta daga hafi verið einhver úrkoma, en hún var þó yfirleitt lítil. Vægt næturfrost gerði einn dag í september og nokkra daga í lok október, en í byrjun nóvember kólnaði með töluverðu frosti og éljum, sem hélst út mánuðinn. Refaveiðar. Samkvæmt Magnúsi Kristinssyni, refaskyttu í Austurhlíð, var legið á 13 grenjum í sumar. Unnust alls 61 dýr, þar af 41 yrðlingur, 17 grendýr og 3 hlaupadýr. Öll gren sem fundust voru í byggð, ekkert fannst í þekktum grenjum á öllum Biskupstungnaafrétti. Litli Bergþór á Tveim úr Tungunum Útsendari Litla Bergþórs var með kynningarbás á sveitarhátíðinni „Tvær úr Tungunum“ í ágúst og tókst þar að krækja í þó nokkra nýja áskrifendur! Ýmsir komu þar að máli við hann og þökkuðu fyrir ágætt blað og kunni okkar maður vel að meta það. Á hátíðinni voru tilkynnt nöfn á hringtorgunum í Reykholti og heita þau annars vegar Bjarnatorg við Bjarnabúð og hins vegar Bjarkartorg við Bjarkarbraut. Tungnaréttir voru haldnar laugardaginn 9. september í góðu veðri. Fjárfjöldi var svipaður og undanfarin ár, nálægt 5000 fjár og fengu menn gott veður á fjallinu. Á Haukadalsheiði heimtist fjöldi fjár eftir fyrstu leit, milli 60 og 70 kindur, og mun það að mestu hafa verið fé af afrétti, sem slapp þangað. Í eftirsafn var farið síðustu helgi í september og heimtust þá 72 kindur samanlagt af inn- og framafrétti, auk sex kinda sem sóttar voru í Einifell daginn áður en farið var í leitina. Síðan hafa heimst 19 kindur og er nú í desember ekki vitað um neina kind eftir á afréttinum. Hlíðabændur voru enn að heimta fé af Úthlíðarhrauni í lok nóvember. Lýðheilsugöngur voru gengnar í Tungunum, eins og víðar um land, öll miðvikudagskvöld í september, til að hvetja unga sem aldna til að hreyfa sig. Stóð Ferðafélag Íslands fyrir göngunum í samvinnu við sveitarfélögin, en FÍ fagnar 90 ára afmæli í ár. Gengið var frá Aratungu, nema í síðustu göngunni, þá var lagt upp frá Hrosshaga og tóku 15-20 manns þátt í hverri göngu. Sveinn Sæland, Helgi Kjartansson, Ásborg Arnþórsdóttir og Sigríður J. Sigurfinnsdóttir voru leiðsögumenn í göngunum, sem voru fræðandi og skemmtilegar fyrir utan það að veita góða hreyfingu. Leikskólabygging í Reykholti. Á fundi sveitarstjórnar þann 12. september var fjallað um tillögu VA arkitekta að nýrri leikskólabyggingu. Til skoðunar voru tvær tillögur um staðsetningu. Sveitarstjórn samþykkti, samhljóða, að byggja skuli „nýja leikskólabyggingu sérstæða milli bílastæða og sparkvallar, til að gefa byggingu meira rými, betra aðgengi og stækkunarmöguleika til framtíðar litið“. Sveitarstjórn fól VA arkitektum að halda áfram vinnu við hönnun húsnæðisins að teknu tilliti til staðsetningar. Hvað segirðu til? Fréttir úr Tungunum frá júní til desember 2017. Þessi kom við í Kvistholti að morgni 17. júní. Skyldi Maggi hafa náð honum?

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.