Litli Bergþór - Dec 2017, Page 31

Litli Bergþór - Dec 2017, Page 31
Litli-Bergþór 31 Þar til gerð- um kassa hefur verið komið fyrir í kofanum og þangað er hægt að skila tillögum að nafni til 20. desember. Í boði er veglegur vinningur fyrir nafnið sem valið verður úr tillögunum. Friðheimar hlutu nú í nóvember nýsköp- unarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar 2017. Verðlaunin voru veitt fyrir athyglisverðar nýjungar, en þau hafa tvinnað saman tómataræktun, ferðaþjónustu og hestamennsku og taka árlega við vel á annað hundrað þúsund ferðamönnum. Garðar Olgeirsson, bóndi og harmónikkuleikari í Hellisholtum, hefur nýlega gefið út barnabókina Ævintýri Stebba og er það listamaðurinn Ellisif Malmo Bjarnadóttir í Laugarási, sem myndskreytti bókina. Jólamarkaður Kvenfélagsins var haldinn í lok nóvember. Var þar margt fallegra muna til sölu og gaman að sjá hve mikið er til af góðu handverksfólki í Tungunum og nágrenni. Piparkökuhúsasamkeppnin sló í gegn og kaffiveitingar Kvenfélagsins voru veglegar að vanda. Allur ágóði rennur aftur til samfélagsins í formi styrkja. Kvenfélagskonur notuðu í þetta sinn tækifærið og útdeildu styrkjum opinberlega: Bláskógaskóli í Reykholti fékk 10 spjaldtölvur að andvirði rúmlega 600 þúsund króna, Heilsugæslustöðin í Laugarási fékk öndunarmæli sem kostar um 137 þúsund, um 300 þúsund krónum var ánafnað til smíði á góðum stiga ofan í sundlaugina í Reykholti, sem auðveldar fólki að komast ofan í laugina. Einnig voru veittir tveir 200 þúsund króna styrkir, annarsvegar til lagfæringar á gluggum Skálholtskirkju og hins vegar til lýsingar Hvítárbrúar við Iðu. Aratunga fékk að gjöf fjóra barnastóla og borðdúka, sem keyptir voru í júní í tilefni forsetaheimsóknarinnar. Ugla heimsækir hænur. Í haust bar það við að brandugla álpaðist fyrir slysni inn í hænsnakofa þeirra Svövu og Víglundar í Höfða. Svava sagði svo frá þessum viðburði: „Hænurnar hóuðu í okkur í gærkvöldi og í ljós kom að það var óboðinn gestur í fjósinu. Það sást örla í hann innst við dyrnar. Það var þessi gullfallega ugla sem hafði séð feita og föngulega mús fara inn í fjósið og ákvað að ná henni. Hún varð hins vegar skelkuð þegar hún áttaði sig á því að hún kæmist ekki eins auðveldlega út. En hún var heppin að alvanar hænurnar kölluðu út björgunarsveitina sem kom og opnaði stóru dyrnar á fjósinu svo að hún kæmist aftur út í frelsið.“ Kaupin á Laugarásjörðinni Áfram freistar Litli Bergþór þess að stunda eilitla rannsóknablaðamennsku. Hann komst að því, þessu sinni, að á aðalfundi Sýslunefndar Árnessýslu, sem haldinn var 1922, samþykkti sýslunefndin þá gjörð oddvita nefndarinnar, að taka ellefu þúsund króna lán úr Viðlagasjóði

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.