Litli Bergþór - des. 2017, Síða 33
Litli-Bergþór 33
vitni. Þið leggið greinilega rækt við samfélag
ykkar í Biskupstungum eins og nauðsynlegt
er. Maður er manns gaman, segir í fornum
sögum og án samfélagsvitundar, samkenndar og
samhjálpar verður samfélag okkar svo fátæklegt,
einstaklingshyggja allsráðandi og það viljum við
ekki, þótt vissulega eigum við að leyfa öllum að
spreyta sig, skara fram úr ef því er að skipta. Og
þá eru ungmennafélögin einmitt svo heppileg,
vettvangur samstöðu en keppni um leið. Ég óska
ykkur velfarnaðar og hlakka til að fylgjast frekar
með ykkar góða starfi.
Eðlilega er nefndin upp með sér vegna hlýrra
orða forsetans í hennar garð, og hefur ákveðið að
senda honum blaðið áfram, í ljósi niðurlagsorðanna
í bréfinu.
Bannskilti til sölu. Það hefur sennilega ekki
farið framhjá neinum, að erlendir ferðamenn hafa
flykkst til landsins sem aldrei fyrr undanfarin
misseri. Talsvert hefur borið á því að þeir hafi
valið sér að næturstað staði sem ekki eru hugsaðir
sem slíkir og borið hefur á óánægju ýmissa vegna
þess arna.
Í byrjun júli birti sviðsstjóri framkvæmda-
og veitusviðs Bláskógabyggðar auglýsingu á
samfélagsmiðlum, þar sem boðin voru til sölu
bannskilti á kostnaðarverði. Sviðsstjórinn mun
hafa selt 12-15 skilti til einstaklinga og fyrirtækja,
auk þess sem þeim var komið fyrir víða þar sem
almenningur hefur aðgang en ekki gert ráð fyrir
að þeir gisti.
Auður Kristjánsdóttir frá Felli
(f. 1.10.1932) lést á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu þann
10. júlí 2017. Útför hennar fór fram frá
Skálholtsdómkirkju föstudaginn 14. júlí og
var hún jarðsett í Haukadal.
Halldór Þórðarson frá Litla-Fljóti
(f. 19.11.1933) lést á Ási í Hveragerði þ. 6.
júlí. Útförin fór fram frá Skálholtsdómkirkju
fimmtudaginn 20. júlí. Halldór var jarðsettur
á Torfastöðum.
Óskar Jóhannesson á Brekku
(f. 2.1.1919) lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands þann 10. ágúst. Útförin
fór fram frá Skálholtsdómkirkju
fimmtudaginn 24. ágúst.
Óskar var jarðsettur í Bræðratungu.
Gunnlaugur Skúlason, dýralæknir, frá
Brekkugerði í Laugarási (f. 10.06.1933)
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þann 19. nóvember. Útför hans fór fram
frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn
2. desember og var hann jarðsettur í
Bræðratungu.
Andlát