Litli Bergþór - des. 2017, Síða 35
Litli-Bergþór 35
Ritstjórn Litla-Bergþórs
hef ur lengi haft hug á
því að ræða við Róbert
Róbertsson, sem lengst
af bjó að Brún í Biskups-
tungum, um líf hans
og störf. Hann er á 93.
aldursári og starfar enn sem
fram kvæmdastjóri Vöru-
bílstjóra félagsins Mjölnis
á Selfossi, en því embætti
hefur hann gegnt síðustu
25 árin, síðan hann komst
á eftirlaun 67 ára, árið
1992. Hann hefur verið
félagi í Mjölni frá 26 ára
aldri og samkvæmt sögu
félagsins, „Vörubílstjórar
á vegum úti“, veglegri
bók, sem kom út árið 2015,
hefur hann gegnt öllum embættum í félaginu á
einhverjum tímapunkti.
Þegar undirrituð leit við hjá honum á skrifstofu
félagsins á haustdögum, sat hann hnarreistur
og ern við skrifborðið í rúmgóðri skrifstofunni
við Hrísmýri 1, þar sem hann vinnur enn fullan
vinnudag. Reiknar þar út tuga- eða jafnvel
hundruða milljóna króna útboð í höndunum, auk
þess sem hann hefur, þar til nýlega, greitt alla
reikninga með ávísunum. Hann hefur ekki séð
ástæðu til að koma sér upp tölvu eða heimabanka,
enda komist vel af án þess hingað til.
Róbert tók beiðni um viðtal með örlitlum
fyrirvara, en lét þó til leiðast. Blaðamaður er því
mættur heim til hans í Grænumörkina með blað
og penna einn mildan haustdag í október og hann
og Bryndís dóttir hans taka vel á móti gesti með
kaffi og bakkelsi.
Að vanda er fyrsta spurningin um ætt og
uppruna. Gefum Róbert orðið.
Ég er fæddur 3. janúar 1925 á Urðarstíg 4
í Reykjavík. Móðir mín var Guðrún Bryndís
Skúladóttir, ættuð úr A-Húnavatnssýslu og faðir
minn Róbert Þorbjörnsson, bakarameistari, fyrst
á Grettisgötu 54, síðar á Bergstaðastræti. En
þau bjuggu aldrei saman. Þrem árum áður hafði
móðir mín eignast hálfbróður minn, Gunnar
Aðalstein Ragnarsson. Hann varð ekki gamall,
fórst í bjargsigi í Vestmannaeyjum 1954, 31 árs.
En dóttir hans Guðrún María býr í Kópavogi
og á þrjú börn og sjö
barnabörn. Móðir
mín giftist síðar Emil
Thoroddsen, tónskáldi
og píanóleikara árið
1932 og þau eignuðust
eina dóttur, Stefaníu
Thoroddsen, sem dó
ung. Sjálf varð móðir
mín ekki gömul,
dó árið 1938, á 37.
aldursári.
Framkvæmdastjóri og
félagsmálatröll á tíræðisaldri
Viðtal við Róbert Róbertsson frá Brún
Róbert á skrifstofu Mjölnis árið 2015, þá níræður.
Bryndís Skúladóttir, móðir Róberts.