Litli Bergþór - Dec 2017, Page 45

Litli Bergþór - Dec 2017, Page 45
Litli-Bergþór 45 Reykjum í tæp 63 ár. Samkvæmt lögum Mjölnis frá 1988 er hlutverk framkvæmdastjóra að vera „trúnaðarmaður stjórnarinnar og er skyldur að hafa eftirlit með því að lögum, reglum og töxtum sé framfylgt“. Nú eru 24 bílstjórar í félaginu og ég er ekki frá því að umsvifin aukist eftir því sem ég eldist! Ég vil að lokum segja, að ég get ekki sagt annað en að Biskupstungur og Grímsnes hafi farið vel með mig. Galtarfólkið er mín nánasta fjölskylda, en börn Elínborgar seldu Gölt fólki úr Húnavatnssýslu, hjónunum Gunnlaugi og Erlu, sem ráku Gunnlaugsbúð á Freyjugötu í Reykjavík og byggðu síðar verslunarmiðstöð í Grafarvogi. Þau hjón hafa haldið Galtar húsinu vel við, Róbert og Ásdís árið 2015. en nýja húsið í Gölt er myndarlegt hús á tveim hæðum auk kjallara, byggt eftir sömu teikningu og um sama leyti og húsið á Tjörn, um 1962. Blaðamaður Litla-Bergþórs þakkar Róbert og Bryndísi dóttur hans fyrir skemmtilegt spjall og veitingar.** Að skilnaði réttir Róbert mér eintak af bókinni „Vörubílstjórar á vegum úti“, sögu Vörubílstjórafélagsins Mjölnis 1941-2015, sem Anna Rósa dóttir hans tók saman. Þykka bók, skrýdda fjölda mynda og mikinn sjóð heimilda um vörubílaútgerð á Suðurlandi. Fær hann kærar þakkir fyrir gjöfina. Í bókinni kemur m.a. fram að Róbert var gerður að heiðursfélaga Vörubílstjórafélagsins Mjölnis árið 1991. Þess má einnig geta að hann var gerður að heiðursfélaga í Ungmennafélagi Biskupstungna á 100 ára afmæli félagsins 2008 og fékk síðar viðurkenningu Búnaðarfélags Biskupstungna fyrir félagsmálastörf. Geirþrúður Sighvatsdóttir * Samkvæmt þeim Gunnlaugi Skúlasyni, sem á ættir að rekja til Kiðjabergs, og Róbert, þá bjuggu menn í Gölt (ekki á/að Gelti) og voru frá Gölt. Mun það hafa verið málvenja í Grímsnesinu og er henni haldið hér. ** Bryndís veitti ómetanlega aðstoð við gagna- og heimildaöflun vegna viðtalsins, fór með föður sínum í gegnum dagbækur hans og reikninga, en þá rifjuðust upp margar skemmtilegar sögur, sem bætt var inn í viðtalið. Fær hún kæra þökk fyrir aðstoðina, sem og prófarkalestur. GS. Verslun og bensínafgreiðsla Opið 9:00 til 21:00 Allar almennar matvörur og olíur Gleðileg jól og farsælt komandi ár, þökkum liðið

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.