Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 22
hætti, að fenginn var kennari til að halda námskeið í upp-
setningu bréfa og skýrslna og ýmsum öðrum tæknilegum
atriðum, sem æskilegt var fyrir þann, er hugði á starf við
vélritun, að kunna skil á. Ingveldur Sigurðardóttir, er þetta
tók að sér, var ágætlega menntuð í innlendum og erlendum
bréfaskriftum og sinnti þessu starfi í mörg ár af fágætri
alúð og samviskusemi. Annað starfsár skólans að Bifröst
var tekin upp kennsla í vörufræði og búðarstörfum og ári
síðar í skrifstofustörfum. Þá kennslu annaðist Gunnar
Grímsson. Innréttuð var kennslubúð með glugga til útstill-
inga og vörur fengnar til þess að nemendur gætu fengið
æfingu í uppröðun. Var það fullkomin ætlun forráðamanna
skólans að halda uppi fræðslu, sem bæði kæmi að gagni
fyrir afgreiðslufólk í verslunum og starfsfólk á skrifstof-
um. Átti með því að koma til móts við hinar fjölbreyttu
þarfir samvinnufélaganna og reyna að sameina hjá nem-
endum þekkingu á búðarrekstri, bókhaldi og almennum
skrifstofustörfum. Til búðarstarfakennslunnar voru útveg-
uð margvísleg kennslugögn, kvikmyndir, skyggnur, bækur
og bæklingar, aðallega frá samvinnusamtökum Norður-
landanna, sem þá voru i fremstu röð hvað snerti nýjungar
á þessu sviði, en einnig frá Bandaríkjunum. Beindist kennsl-
an einkum að því að kynna og kenna kjörbúðafyrirkomu-
lagið, sem samvinnufélögin voru sem óðast að innleiða á
þessum árum. Þessari kennslu var haldið uppi um mörg ár
af mikilli þrautseigju, en með takmörkuðum árangri, að
því leyti til, að hægt sóttist að gera nemendur svo áhuga-
sama um búðarstörf, að þeir sæktust eftir búðinni sem
starfsvettvangi, enda kom þar og til annar sterkari þáttur,
þar sem var launakjör og vinnutími. Vörufræði var einnig
sinnt verulega. Gunnar Grímsson tók saman kennslubók
og aflað var fjölda sýnishorna og myndefnis til kennslunn-
ar. 1 þeirri grein tókst nokkur samvinna við Verslunar-
skólann, þannig að kennari Verslunarskólans í greininni
kom og f jallaði um þá þætti vöruþekkingar, sem hann hafði
sérhæft sig í, og skipst var á kennsluefni.
Haustið 1956 réðst Hörður Haraldsson að skólanum.
18