Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 155
brekku í Dölum, rannsóknarlögreglumaður
í Rvík, d. 29. 4. 1970, og Ingibjörg Eyþórs-
dóttir, f. 20. 8. 1925 í Reykjavík, húsmóðir.
Maki 15. 5. 1976: Guðrún Gísladóttir, f. 11.
12. 1954 í Reykjavík, skrifstofumaður.
Barn: Anna Valgerður, f. 4. 8.1977. — Lauk
gagnfræðanámi í Rvík, var skiptinemi í
Bandaríkjunum 1967—68, sat framhalds-
deild SVS 1974-76. Starfaði i Landsbanka
Islands í Rvík 1968—69, hjá Loftleiðum hf.
1970-72, Dráttarvélum hf. 1976-77. Er
nú skrifstofumaður í Kávlinge í Svíþjóð.
Var í skóla formaður Listaklúbbs SVS.
Jón Pálmi Pálsson. Sat SVS 1972-7k- F.
27. 7. 1954 á Siglufirði og uppalinn þar.
For.: Páll G. Jónsson, f. 12. 10. 1917 að
Ljótsstöðum í Skagafirði, byggingameist-
ari hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglu-
firði, og Eivor Jónsson, f. 24. 5. 1927 í Sví-
þjóð, húsmóðir. — Lauk gagnfræðaprófi frá
Barna- og gagnfræðaskóla Siglufjarðar,
var þrjá mánuði við enskunám í Englandi,
sótti námskeið í skattendurskoðun á veg-
um fjármálaráðuneytisins 1974. Stundaði
fyrir skóla verkamannavinnu og sjó-
mennsku, sumarvinna 1973, 1974 og 1975
á Skattstofu Norðurlands vestra á Siglu-
firði sem endurskoðandi, bókari og gjald-
keri hjá Rafveitu Siglufjarðar frá 1. 12.
1975 til 31. 12. 1976, skrifstofustjóri hjá
Rafmagnsveitum ríkisins Austurlandsveitu
frá 1. 1. 1977 til 31. 12. 1978. Framkvstjóri
Prjónastofunnar Dyngju, Egilsstöðum, frá
1. 1. 1979. Var varaformaður Starfsmanna-
félags Siglufjarðarkaupstaðar 1976 og í
151