Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 44
í stjórn Skíðasambands Islands 1946—47,
formaður Skíðaráðs Reykjavíkur 1947—49.
Forseti Bridgesambands Islands 1957—61.
1 stjórn Stangaveiðifélags Rvíkur 1947—56,
gjaldkeri þess og framkvæmdastjóri í átta
ár. Einn af stofnendum Lionsklúbbsins
Freys 29. 2. 1968 og formaður hans 1972—
73. Var gerður fyrsti heiðursfélagi klúbbs-
ins 25. 10. 1976. Kosinn umdæmisstjóri
Lions í umdæminu 109A fyrir starfsárið
1978—79.1 stjórn Golfklúbbs Rvíkur 1969—
75. Systur sátu skólann, Rannveig 1923—
24 og Rósa 1926—28.
Pétur Jónsson. Sat SVS 1923—24- F. 23. 10.
1904 að Egilsstöðum á Völlum, S.-Múla-
sýslu, og uppalinn þar. For.: Jón Bergsson,
f. 22. 5. 1855 í Bjarnarnesi, bóndi á Egils-
stöðum, d. 9. 7. 1924, og Margrét Péturs-
dóttir, f. 28. 3. 1865 í Vestdal í Seyðisfirði,
húsmóðir, d. 16. 7. 1944. Maki 10. 3. 1929:
Elín Ólafsdóttir Stephensen, f. 19. 10. 1904
í Skildinganesi í Skerjafirði, húsmóðir.
Börn: Jón, f. 23. 6. 1930, dýralæknir, Ólaf-
ur Stephensen, f. 11. 11. 1932, d. 26. 12.
1956, Margrét, f. 14. 8. 1937, Steinunn Ás-
laug, f. 8. 3. 1944, skrifstofustúlka. — Bóndi
á Egilsstöðum frá 1929. Annaðist póstferð-
ir á Upphéraði báðum megin fljóts frá
unglingsárum allt fram um 1972. I stjórn
Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráði
í 8 ár. 1 stjórn Kf. Héraðsbúa nær 30 ár.
Formaður hestamannafélagsins Freyfaxa
frá stofnun þess, 1952. I fasteignamats-
nefnd 1939—42, í sýslunefnd um 20 ára
skeið.
40