Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 130
Kristján Ármannsson. Sat SVS 1962—64•
F. 17. 5. 1944 á Akureyri og uppalinn þar.
For.: Ármann Dalmannsson, f. 12. 9. 1894
að Fíflholti í Mýrasýslu, f. v. skógarvörður
á Akureyri, og Sigrún Kristjánsdóttir, f.
9. 9. 1901 að Végeirsstöðum í S.-Þing., hús-
móðir. Maki 17. 12. 1966: Guðbjörg Vignis-
dóttir, f. 8. 9. 1949 á Akureyri, hreppstjóri
í Presthólahreppi. Börn: Sigrún, f. 13. 3.
1968, Anna Pála, f. 27. 2. 1973, Eva, f. 6.
12. 1974. — Landspróf frá Gagnfræðaskóla
Akureyrar, lauk þriðja bekkjar prófi frá
Menntaskóla Akureyrar. Vann á skrifstofu
KEA á Akureyri 1964—66, hjá ferðaskrif-
stofunni Lönd og leiðir hf. á Akureyri 1966,
efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri 1967—
70, kaupfélagsstj. Kf. N.-Þingeyinga 1970—
76, framkvstjóri Sæbliks hf. á Kópaskeri
frá 1976 og jafnframt rækjusjómaður 1976
—77. Starfaði í Skautafélagi Akureyrar og
form. í nokkur ár, í Iþróttabandalagi Ak-
ureyrar, var í Skautanefnd ISl og form.
hennar, var í 17. júní nefnd Akureyrar,
form. byggingarnefndar Presthólahrepps
1970—78, formaður Framsóknarfélags N.-
Þingeyjarsýslu, vestan heiðar, 1974—77, á
sæti i Sóknarnefnd Snartarstaðakirkju og
í Skógræktarfélagi N.-Þingeyjarsýslu, for-
maður Slysavarnadeildar Kópaskers og ná-
grennis frá 1976, varaþingmaður fyrir
Framsóknarflokkinn í Norðurlandskjör-
dæmi eystra 1974—78. Oddviti Presthóla-
hrepps frá 1978.
Kristín L. Brynjólfsdóttir Hultgren. Sat
SVS 1962-64. F. 28. 7. 1945 að Fossi í
126