Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 64
Wilhelm Norðfjörð. Sat SVS 1932-3Jh F.
19. 8. 1916 í Reykjavík og uppalinn þar.
For.: Jóhannes Norðfjörð, f. 7. 9. 1875 í
Rvík, úrsmiður á Sauðárkróki og í Rvík,
d. 17. 6. 1952, og Ása Jónsdóttir Norðfjörð,
f. 11. 6. 1883 að Ásmundarstöðum á Mel-
rakkasléttu, húsmóðir, d. 26. 10 1963. Maki
28. 5. 1938: Guðrún Sæmundsdóttir Norð-
fjörð, f. 15. 9. 1913 á Ólafsfirði, húsmóðir.
Börn: Árni Stefán, f. 15. 2. 1936, úrsmiður,
Kjartan, f. 12. 10. 1942, verslunarmaður,
Wilhelm, f. 17. 4. 1950, nemi í sálarfræði. —
Stundaði verkamannastörf til 1935, skrif-
stofustörf 1935—40, stórkaupmaður og
kaupmaður frá 1940. Hefur starfað í Félagi
ísl. leikara frá 1940 og í Oddfellowreglunni
frá 1946. Stundaði leikstörf frá 1935—51,
var gerður heiðursfélagi Leikfélags Rvíkur
1973. Bróðir, Árni Stefán Norðfjörð, sat
skólann 1928—29.
Þórður Jónsson. Sat SVS 1933—34. F. 7.
10. 1915 í Reykjavík og uppalinn þar, d. 10.
2. 1968. For.: Jón Jónsson, f. 16. 10. 1870
að Skipholti í Hornhreppi, bóndi þar og í
Teitsdal í Arnarfirði, síðar járnsmiður í
Rvík, d. 17. 12. 1955, og Valdís Jónsdóttir,
f. 14. 3. 1875 að Högnastöðum í Hruna-
mannahreppi, húsmóðir, d. 9. 2. 1970. Maki
8. 6. 1940: Sigríður Þorvarðardóttir, f. 27.
9. 1914 í Rvík, hárgreiðslukona. Börn: Eva
Dagbjört, f. 17. 6. 1933, húsmóðir og ritari,
Valdís, f. 23. 11. 1941, sjúkraliði, Þórður, f.
28. 2. 1945, garðyrkjumaður, Þorvarður, f.
26. 10. 1952, bankastarfsmaður. — Var við
60