Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 102
að húsmóðurstörf. Aðrar heimildir: Arnar-
dalsætt.
Guðmundur E. Erlendsson. Sat SVS 1953—
54. F. 13. 1. 1936 í Reykjavík og uppalinn
þar. For.: Erlendur Einarsson, f. 28. 10.
1883 að Skúmsstöðum á Eyrarbakka,
verkamaður í Rvík, d. 16. 7. 1963, og Helga
I. Helgadóttir, f. 16. 2. 1894 að Görðum í
Garði, Gullbringusýslu, húsmóðir, d. 14. 3.
1970. — Tók gagnfræðapróf frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1953, stundaði nám í
endurskoðun og varð löggiltur endurskoð-
andi 13. 1. 1961. Starfaði í hagdeild og end-
urskoðunardeild SlS 1954—56. Nám og
störf á endurskoðunarskrifstofu Eyjólfs K.
Sigurjónssonar og Ragnars Á. Magnússon-
ar í Rvík 1956—61. Aðalendurskoðandi SlS
1961—69. Starfrækti eigin endurskoðunar-
skrifstofu í Rvík 1969—72. Forstöðumaður
skrifstofu Ríkisskattanefndar frá 1972.
Guðmundur Ingvarsson. Sat SVS 1953—51f.
F. 12. 4. 1935 að Syðra-Lóni á Langanesi
og uppalinn þar. For.: Ingvar Einarsson, f.
1. 11. 1906 að Garði í Þistilfirði, bóndi að
Lóni á Langanesi, d. 1. 8. 1946, og Sigríður
Guðmundsdóttir, f. 10. 8. 1911 að Jaðri við
Þórshöfn, starfsstúlka á Kleppsspitalanum.
Maki 12. 10. 1957: Ólöf Ólafsdóttir, f. 21. 6.
1937 á Þingeyri, talsímavörður. Börn:
Ingvar, f. 4. 2. 1956, Ragnar Ólafur, f. 4.
3. 1959, Guðrún, f. 23. 9. 1960, Sigurður
Borgar, f. 4. 1. 1965. — Stundaði nám við
Héraðsskólann að Laugum, á Vár Gárd í
98