Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 81
strandarsýslu í 13 ár, eða þar til þær nefnd-
ir voru lagðar niður. 1 stjórn Eyrarspari-
sjöðs á Patreksfirði síðan 1965, stjórnar-
formaður frá 1968. Var í hreppsnefnd Pat-
rekshrepps 1974—78. Sat í rafveitunefnd
Patrekshrepps í 16 ár. Hefur verið í sókn-
arnefnd s.l. fjögur ár. Er nú í varastjórn
Orkubús Vestfjarða.
Ingólfur Viktorsson. Sat SVS 19Jf3—-4-4- F.
16. 4. 1924 í Flatey á Breiðafirði og uppal-
inn þar. For.: Viktor Guðnason, f. 10. 9.
1899 á Þingeyri í Dýrafirði, verslunarmað-
ur hjá Kf. Flateyjar og síðar póst- og sím-
stjóri í Flatey, d. 5. 8. 1964, og Jónína G.
Ólafsdóttir, f. 22.11.1893 í Reykjavík, hús-
móðir í Flatey, d. 13. 1. 1974. Maki I 22. 4.
1953: Margrét Jensdóttir, f. 10. 9. 1932 á
Akureyri, húsmóðir. Maki II 28. 12. 1965:
Unnur Fenger, f. 20. 3. 1932 í Reykjavík,
húsmóðir. Börn með maka I: Jens Rúnar,
f. 18. 12. 1953, við nám í viðskiptafræði í
Háskóla Islands, Viktor Arnar, f. 12. 4.
1955, við nám í Tækniskóla Islands. Með
maka II: Guðni, f. 8. 5. 1967. Ingólfur
Hrafnkell, f. 8. 1. 1950. Móðir: Valgerður
Guðmundsdóttir frá Akureyri, við nám í
félagsvísindum við háskólann í Bremen í
Þýskalandi. — Stundaði almennt barna-
skólanám og sótti tímakennslu. Við nám í
Loftskeytaskóla Islands 1945—46. Verð-
lagseftirlitsmaður á Isafirði frá okt. 1944
til okt. 1945. Loftskeytamaður á flutninga-
skipum Skipadeildar SlS frá stofnun henn-
ar, 1946, til vors 1969, var á Hvassafelli
(eldra), Helgafelli og Hamrafelli. Gerðist
77