Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 129
Próf frá Barna- og miðskóla Hveragerðis,
nám í Húsmæðraskóla Rvíkur, námskeið í
málaskóla Halldórs. Var gjaldkeri hjá Kf.
Hafnfirðinga 1965—71, síðan skrifstofustörf
hjá Sigurði & Júlíusi hf., sem maki rekur
ásamt öðrum. Hefur átt sæti í sóknarnefnd
Víðistaðasóknar í Hafnarfirði síðan 1977.
Karin R. Kristjánsdóttir Lehman. Sat SVS
1962—6Jf. F. 1. 4. 1945 á Hofsósi í Skaga-
firði, uppalin þar, í Stykkishólmi og Reykja-
vík. For.: Kristján Hallsson, f. 29. 11. 1915
á Hofsósi, skrifstofumaður hjá Fiskifélagi
Islands í Rvík, og Eygerður Bjarnadóttir, f.
23. 9. 1918 í Hafnarfirði, húsmóðir. Barn:
Michelle Lee Lehman, f. 13. 9. 1968. —
Stundaði nám í miðskóla í Borgarnesi og
Stykkishólmi, var í Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Nám í University of Louisville,
Louisville, Kentucky í Bandaríkjunum 1968
—70. Var au-pair í London 1964—65, skrif-
stofustúlka í Handelsbanken í Kaupmanna-
höfn 1965—66, einkaritari og bókhaldari
Verkfræðingafélags Islands í Rvík 1966—
67, flugfreyja hjá Loftleiðum hf. sumarið
1967, einkaritari hjá Islenskum aðalverk-
tökum í Keflavík 1967—68, hjá Kentucky
Payroll Clerk — Payroll Department 1970—
71, Purchasing Assistant — Children and
Youth Project 1971—73, Administrative
Assistant — Children and Youth Project
1973—74, Administrative Associate III —
Arts & Sciences, Dean’s Office frá 1974.
Hefur lagt stund á tennis og hlaup. Faðir,
Kristján Hallsson, sat skólann 1935—37.
125