Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 73
og er nú deildarfulltrúi, er þá undanskilið
sumarið 1952, en vann þá á vegum Varnar-
málanefndar á Keflavíkurflugvelli við leið-
réttingu á launaútreikningum. Sat í aðal-
stjórn Knattspyrnufélagsins Vals 1949 og í
stjórn fulltrúaráðs Vals 1972—75 og aftur
frá 1978. Varð Islandsmeistari með knatt-
spyrnuliði Vals 1940, 1942, 1943, 1944 og
1945 og Islandsmeistari í handknattleik
með handknattleiksliði Vals 1940, 1941,
1942 og 1944. Þjálfari meistaraflokks Vals
í knattspyrnu 1963 og 1965 og þjálfari II.
flokks Vals 1959-62.
Gísli Benóný Kristjánsson. Sat SVS 19 If3—
44- F. 24. 4. 1920 á Isafirði og uppalinn þar.
For.: Kristján H. Magnússon, f. 4. 4. 1890 i
Króksbæ á Isafirði, verkamaður og sjómað-
ur á Isafirði, d. 13. 7. 1961, og Rannveig
Sálóme Sveinbjörnsdóttir, f. 9. 7. 1895 á
Súgandafirði, alin upp á Kirkjubóli í Skut-
ulsfirði, húsmóðir á Isafirði, d. 8. 5. 1968.
Maki 28. 7. 1951: Sigurbjörg Jóhanna Þórð-
ardóttir, f. 5. 2. 1924 að Breiðabólsstað á
Fellsströnd í Dalasýslu, húsmóðir og kenn-
ari. Börn: Unnsteinn Þórður, f. 7. 3. 1952,
við nám í Kaupmannahöfn, Magnús, f. 11.
6. 1957, nemandi, Kristján, f. 8. 10. 1960,
nemandi, Gísli örn, f. 17. 4. 1965. — Stund-
aði nám við Barna- og gagnfræðaskóla Isa-
fjarðar. Vann á skólaárum öll almenn störf
til sjávar og sveita. Hóf störf í Prentsmiðj-
unni Eddu hf. í maí 1944 sem bókari, síðar
gjaldkeri og hefur um árabil verið skrif-
stofustjóri. Hafði sem aukastarf bókhald
og bíóstjórn í Kópavogsbíói fyrstu 4]A ár
69