Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 162
Sigríður Jónsdóttir. Sat SVS 1972—7Jf. F.
16. 8. 1954 á Akureyri, uppalin í Víkurnesi
í Mývatnssveit. For.: Jón Árni Sigfússon,
f. 23. 10. 1929 að Vogum í Mývatnssveit,
bílstjóri í Mývatnssveit, og Þorbjörg Sig-
ríður Gísladóttir, f. 27. 11. 1930 að Hellu-
vaði í Mývatnssveit, húsmóðir. Maki 17. 7.
1975: Jóhann Jónsson, f. 31. 3. 1950 á
Djúpavogi, skrifstofumaður. Barn: Þor-
björg, f. 19. 10. 1976. — Tók landspróf frá
Héraðsskólanum að Laugum í S.-Þing.
Starfaði við útibú Kf. Þingeyinga í Reykja-
hlíð 1968—71 og við Hótel Reynihlíð sumr-
in 1972 og 1973, verið skrifstofumaður
hjá Einari Guðfinnssyni hf. í Bolungarvík
frá 1974. Maki, Jóhann Jónsson, sat skól-
ann 1971-73.
Sigrún Kristinsdóttir. Sat SVS 1972—71f. F.
6. 6. 1954 í Reykjavík, uppalin í Stykkis-
hólmi. For.: Kristinn Breiðfjörð Gíslason,
f. 9. 10. 1919 í Rauðseyjum á Breiðafirði,
bóndi í Stykkishólmi, og Sólveig Sigurðar-
dóttir, f. 5. 5. 1925 að Innra-Leiti á Skógar-
strönd, húsmóðir og verkakona. Maki 12.
11. 1977: Páll Finnbogi Aðalsteinsson, f.
23. 7. 1954 að Hvallátrum á Breiðafirði,
bifreiðarstjóri. Barn: Kristinn Már, f. 13.
4. 1976. — Tók gagnfræðapróf frá Gagn-
fræðaskóla Stykkishólms. Vann við skrif-
stofustörf hjá Skipasmíðastöðinni Skipavík
í Stykkishólmi frá maí 1971 til okt. 1974,
að frádregnum tveim vetrum í SVS, frá
okt. 1974 til maí 1975 á Lögfræðiskrifstofu
Ragnars Jónssonar og Gústafs Þórs
158