Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 173
1. Lesin fundargerð síðasta fundar og hún samþykkt án
athugasemda.
2. Framsöguræða, „Flokkaskiptingin“, flutt af Hannesi
Jónssyni.
Hannes talaði m. a. um hið tiltölulega góða ástand, sem
skapast hefði hér á landi í stjórnmálum, eða flokkaskipt-
ingu, upp úr síðasta stríði og hversu það hefði verið á þró-
unarleið allt til ársins 1930, en þá varð fyrst vart við
kommúnistahreyfingu hér á landi, sem byrjaði með því að
koma öllu á óskaplega ringuli’eið, fyrst og fremst með því
að ónýta alla vinstri samvinnu, sem hafði um nokkurra ára
bil staðið með allmiklum blóma. Hannes kvaðst vona að
brátt kæmist á betra skipulag og meiri samheldni meðal
lýðræðissinnaðra vinstri flokka og að flokkunum mætti
fækka frá því sem nú er, enda yrði það að sjálfsögðu lýð-
ræðissinnuðum vinstri flokkum til eflingar.
Næstur talaði Guttormur Öskarsson um sama mál og
var í aðalatriðum sammála frummælanda, en benti þó á,
að í lýðræðislandi hljóti að vera allmargir stjórnmála-
flokkar, enda þótt hann teldi æskilegast að þeir væru sem
fæstir. Gunnar Helgason sagði og nokkur orð um sama mál.
3. Önnur mál: Hannes Jónsson bar fram svihljóðandi til-
lögu og fylgdi henni úr garði með nokkrum orðum: Tillaga:
1. Fundur haldinn í Skólafélagi Samvinnuskólans laugar-
daginn 5. febrúar 1944 lítur svo á, að með prentaðri útgáfu
af Hugni 30. janúar s. 1. hafi sannast, að fjárshagshlið sams
konar útgáfu sé ekki ofvaxin félaginu. Jafnframt álítur
fundurinn að nægjanlegur fjöldi nemenda sé innan skólans
til að halda úti slíku blaði.
2. Fundurinn telur með öllu óviðeigandi af formanni og
gjaldkera félagsins að standa á móti því, að prentað blað
verði gefið út í lok skólaársins. Þess vegna felur hann rit-
stjóra einum að sjá um útgáfuna án íhlutunar annarra
stjórnarmeðlima en ritara félagsins.
3. Þótt fundurinn vilji á engan hátt skerða vald ritstjóra
yfir blaðinu, þá telur hann æskilegt að hið nýstofnaða
169