Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 119
Sigurþór Breiðfjörð Gunnarsson. Sat SVS
1953—54. F. 18. 1. 1936 að Naustabr. á
Rauðasandi, uppalinn á Patreksfirði. For.:
Gunnar Breiðfjörð Þórarinsson, f. 20. 8.
1914 í V.-Barð., togaraskipstjóri í Rvík og
Lilja Kristjánsdóttir, f. 5. 4. 1912 í Þing-
eyjarsýslu, húsmóðir. Maki I 11. 10. 1958:
Guðrún Karlsdóttir, f. 18. 12. 1935 í Borg-
arnesi, yfirhjúkrunarkona við Landsspítal-
ann, slitu samvistum. Maki II: Magnea
Fransiska Bergmann, kaupkona, slitu sam-
vistum. Börn með maka I: Áslaug, f. 4. 1.
1958, Gunnar, f. 13. 4.1959, Sigríður Hulda,
f. 5. 4. 1963. — Tók gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar í Rvik, hefur
sótt námskeið á vegum Irma í Danmörku
og Tobaks í Málmey í Svíþjóð. Vann í sex
ár hjá Iceland Central Exchange, sjómaður
á m.s. Helgafelli 1960—61, síðán fasteigna-
sali ásamt Jóhanni Lárussyni i Rvík til
1967. Vann síðan ýmis störf, en hefur frá
30. 9. 1974 unnið hjá Svenska Tobaks AB.
Hefur mikinn áhuga á íþróttum, s. s. is-
hocky, knattspyrnu, handbolta, körfubolta
og kúluvarpi, einnig áhugamaður um sigl-
ingar.
Sveinbjörn Benediktsson. Sat SVS 1953—
54• F. 1. 1. 1933 í Kaupmannahöfn, uppal-
inn í Mýrdal til ellefu ára aldurs, síðan í
Rvík. For.: Benedikt Guðjónsson, f. 3. 3.
1909 að Auðsholti í Biskupstungum, kenn-
ari í Rvík, og Róshildur Sveinsdóttir, f. 21.
2. 1911 að Ásum í Skaftártungum, húsmóð-
ir. Maki 13. 10. 1964: Auður Jónsdóttir, f.
2. 2. 1942 að Hóli í önundarfirði, verslun-
115