Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 79
74. Skipaður sendiherra í Sovétrikjunum
frá 1. 9. 1974 og jafnframt sendiherra í
Búlgaríu, þýska alþýðulýðveldinu, Rúmeníu
og Ungverjalandi með aðsetri i Moskvu frá
1. 10. 1974. Einnig skipaður sendiherra í
Ulan Bator, Mongólíu, með búsetu í Moskvu,
síðan 1977. Kjörinn í hreppsnefnd Kópa-
vogs 1954 og bæjarstjórn Kópavogs 1955.
Stofnandi og form. Kf. Kópavogs 1952—55,
stofnandi Byggingasamvinnufélags Kópa-
vogs og form. 1952—55. Forstjóri Félags-
málastofnunar í Rvík og ritstj. bókasafns
hennar 1961—66. 1 stjórn alþjóða félags-
fræðisambandsins 1966—69. Höfundur eft-
irtalinna bóka og bæklinga: Landkynn-
ingarritsins „Iceland’s Unique History and
Culture“, sem fyrst kom út 1960 og síðan
tvisvar endurprentað, „Félagsstörf og
mælska“ 1963, „Fjölskylduáætlanir og sið-
fræði kynlífs" 1964, „Samskipti karls og
konu“ 1965, „Lýðræðisleg félagsstörf“
1969, „Iceland and the Law of the Sea“,
1972, „Iceland’s 50 Miles and the Reasons
why“ 1973, „The Evolving Limit of Coastal
Jurisdiction" 1974, „Framsóknarstefnan“
1974 og fleiri rit. Ritstjóri og höfundur að
hluta að eftirtöldum bókum: „Verkalýður-
inn og þjóðfélagið" 1962, „Fjölskyldan og
hjónabandið" 1963, „Efnið, andinn og ei-
lífðarmálin“ 1964, „Kjósandinn, stjórnmál-
in og valdið“ 1965. Auk þess skrifað fjölda
greina um félags- og efnahagsmál og stjóm-
mál í blöð og tímarit, og flutt mörg erindi
í útvarp um félagsfræðileg efni. Var sæmd-
ur stórriddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu 1976.
75