Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 161
arstjóri hjá Tryggingu hf. Barn: Valdís, f.
11. 5. 1976. — Lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1970 og hús-
mæðraskólaprófi frá húsmæðraskólanum
Ósk á Isafirði. Vann fyrir skóla ýmis störf
við fiskvinnslu á Siglufirði, var 1974 á
skrifstofu hjá Menntamálaráðuneytinu,
hefur síðan unnið hjá Búvörudeild SlS.
Maki, Jón Magnússon, sat skólann 1971—73.
Sigmar Einar Arnórsson. Sat SVS 1972—
71f. F. 28. 4. 1953 á Siglufirði og uppalinn
þar. For.: Arnór Sigurðsson, f. 20. 3. 1920
í Hnífsdal, næturvörður í Samvinnubank-
anum í Rvík, og Aðalheiður Jóhannesdótt-
ir, f. 10. 9. 1922 að Hlíð í Álftafirði, Barða-
strandarsýslu, húsmóðir. Maki I í júlí 1971:
Ásta S. Geirsdóttir, f. í júní 1953 á Borgar-
firði eystra, slitu samvistum 1973. Maki II
7. 10. 1976: Heiðrún Aðalsteinsdóttir, f. 28.
1. 1955 í Rvík, húsmóðir og starfsmaður
Ananda Marga. Barn: Drengur, óskírður,
f. 19. 8. 1977. — Stundaði nám í plötusmíði
1970-71, við framhaldsdeild SVS 1974-
76, LFT þjálfun í Þýskalandi hjá Ananda
Marga, apríl—júní 1977. Vann sumarið
1974 í byggingarvinnu, sumarið 1975 í bók-
haldi SlS, sumarið 1976 í skipulagsdeild
SlS, hefur síðan starfað fyrir jógahreyf-
inguna Ananda Marga. Var áheyrnarfull-
trúi fyrir framhaldsdeild SVS í stjórn
Nemendasambands Samvinnuskólans 1974
—75. 1 stjórn járniðnaðarnema 1971. Maki,
Heiðrún Aðalsteinsdóttir, sat skólann 1972
-74.
157