Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 26
skólans, sem jöfnum höndum voru skipulagðar til þess að
kynnast atvinnurekstri eða viðskiptalífi og njóta þeirra
menningarverðmæta, s. s. leiklistar, tónlistar eða mynd-
listar, er ekki var kostur á í uppsveitum Borgarfjarðar.
Veigamestar þessara ferða voru ferðir, er venjulega tóku
fjóra til sex daga og farnar voru annað árið til Reykja-
víkur að kynna sér starfsemi SlS og deilda þess þar í höf-
uðstöðvunum, en hitt til Akureyrar að skoða verksmiðjur
samvinnumanna á staðnum og kynnast rekstri og umsvif-
um Kaupfélags Eyfirðinga. Opnuðu þessar ferðir mörgum
nýjan skilning á umfangi og gildi íslensks iðnaðar og sam-
vinnustarfs.
Þessi búauðgisstefna, ef nota má það orð í þessu sam-
bandi, á félagsmálasviði, varð til þess, að nánast allir nem-
endur urðu einhvern tíma á skólaferli sínum að leggja sitt
af mörkum skólasystkinum sínum til gleði og fagnaðar-
auka og leysti það úr læðingi eða kom upp um ýmsa hæfi-
leika, sem fólk hafði sjálft ekki hugmynd um, að það byggi
yfir.
Einnig var reynt að koma til móts við sem flesta áhuga-
hópa með sköpun aðstöðu til tómstundastarfs. Þegar á
fyrsta vetri urðu til fimm klúbbar, auk þess hljómsveitir
karla og kvenna og tvöfaldur kvartett pilta. Smátt og smátt
bættust fleiri við og komu þeir upp með sameiginlegu átaki
nemenda og skólans tækjakosti, sem nauðsynlegur þótti,
þó að fyrstu árin væri harla þröngt um húsrými fyrir starf-
semi margra þeirra. Hróar Björnsson, sem fyrstur gegndi
starfi tómstundakennara, lagði með góðri aðstoð fyrstu
tveggja árganganna þann grundvöll, sem síðar var byggt á.
Hann var maður fastur fyrir og fylginn sér, gekk ríkt eftir
að nemendur virtu útivistarskylduna og notuðu þann tíma
til að reyna á og stæla líkamann, en hann stóð líka traustan
vörð um rétt hins félagslega þáttar og leið ekki, að á þann
rétt væri gengið, jafnvel þótt talið væri, að hagsmunir hins
bóklega náms krefðust þess. Á þessum grunni reis traust
og margþætt félagslíf, sem alla tíð hefur verið einkenni
skólans og án efa haft veruleg áhrif á lífsviðhorf nemenda
22