Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 127
störf hjá Fataverksmiðjunni Gefjun í Rvík
1964—66, skrifstofustörf í Kaupmannahöfn
1966—67. Skrifstofustörf hjá Loftleiðum
hf., síðar Flugleiðum hf. 1968—75. Teiknari
hjá Auglýsingastofu Sambandsins 1975—77,
hefur síðan unnið á Auglýsingastofu Gísla
B. Björnssonar. Teiknari F.l.T. frá 1978.
Var um langt árabil virkur félagi í skáta-
hreyfingunni, tók mikinn þátt í félagslífi
í Bifröst, m. a. ritstjóri skólablaðsins Vef-
arinn, formaður blaðamannaklúbbs og for-
maður Ecce Homo nefndar. Sat í stjórn
NSS 1964—65. Maki, Sigurbjörg Aðalsteins-
dóttir, sat skólann 1963—65.
Hersteinn Tryggvason. Sat SVS 1962—61{.
F. 8. 7. 1943 á Akureyri og uppalinn þar.
For.: Tryggvi Haraldsson, f. 7. 10. 1913 að
Flatatungu í Skagafirði, starfar hjá bæjar-
fógeta á Akureyri, og Fjóla Jónsdóttir, f.
27. 10. 1922 að Daðastöðum í Skagafirði,
verslunarkona á Akureyri. Maki 23. 10.
1965: Birna Hólmdís Jónasdóttir, f. 3. 6.
1946 á Akureyri, húsmóðir. Börn: Halla,
f. 9. 3. 1966, Fjóla, f. 24. 12. 1967, Linda, f.
7. 4. 1972, Börkur Már, f. 11. 9. 1977. -
Lauk 3. bekk við Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, landspróf frá Héraðsskólanum að
Núpi, 3. bekkjar próf frá Menntaskóla Ak-
ureyrar. Starfaði hjá bæjarfógetaembætt-
inu á Akureyri 1964—68, hefur síðan rekið
eigin verslun á Akureyri. Formaður Félags
ungra jafnaðarmanna á Akureyri 1965 og
í stjórn þess félags um árabil. Mikill áhuga-
maður um stjórnmál og hestamennsku.
123