Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Blaðsíða 50
4. 12. 1938: Ólafur Helgi Bjarnason, f. 21.
2. 1915 í Reykjavík, deildarstjóri á Toll-
stjóraskrifstofunni. Börn: Sigríður H., f. 1.
5. 1939, skrifstofumaður, Guttormur, f. 24.
7. 1943, við háskólanám í Svíþjóð, Þor-
steinn, f. 2. 3. 1945, framkvstj. Kísiliðjunn-
ar hf., Eggert Bjarni, f. 29. 2. 1952, stud.
jur. — Almennt barnaskólanám í farskóla
heimasveitarinnar, síðan part úr þrem
vetrum óreglulegur nemandi við alþýðu-
skólann í Mjóanesi í Vallahreppi og lauk
þaðan prófi 1930, en þá hafði skólanum
verið breytt í húsmæðraskóla. Stundaði
nám við Statens Studenterkurzus í Kaup-
mannahöfn 1934—35. Nám við Kennara-
skólann 1937—38 og lauk þaðan kennara-
prófi. Vann við verslunar- og kennarastörf
1933—42, að undanskildum námsárum,
kennari 1947—51, í eitt ár við Kársnesskóla
í Kcpavogi og þrjú ár við Melaskólann í
Rvík, síðan húsmóðir, en hefur síðustu ár
stundað heimavinnu fyrir Orðabók Háskól-
ans. Var ein af stofnendum Sambands aust-
fiskra kvenna 1942 og ritari í stjórn þess
fyrstu árin. Starfað í Félagi framsóknar-
kvenna í Rvík og átti sæti í fulltrúaráði
Framsóknarfélaganna í Rvík. Maki, Ólafur
Bjarnason, sat skólann 1936—38.
Björgúlfur Sigurðsson. Sat SVS haustið
1932 til áramóta, 1934 frá áramótum. F. 3.
7. 1915 á Patreksfirði, uppalinn í Flatey á
Breiðafirði. For.: Sigurður Jóhannesson, f.
2. 2. 1881 að Höfða í Eyrarsveit, skipstjóri
í Flatey, síðar starfsmaður Útvegsbanka
Islands í Rvík, d. 6. 3. 1962, og Halldóra
46