Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 16
16 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
skilið og á mig sóttu sjálfsvígshugsanir.
Jafnframt var ég allur undirlagður af
verkjum sem voru afleiðingar bílveltu sem
ég lenti í árinu áður. Ég vissi eiginlega
ekki hvað ég ætti að gera og labbaði bara
um bæinn sem sjálfsagt gerði mér gott.
Ég eignaðist svo hund og reyndi að fara
með hann út til að halda mér gangandi
en réð ekki við neitt meira.“
Stefán segir eiginkonu sína hafa bent sér
á þjónustu Starfsendurhæfingarsjóðs.
,,Hún hafði kynnst starfseminni í gegn-
um vinnustað sinn og hvatti mig til
þess að hafa samband við ráðgjafa. Ég
svaraði játandi en lét ekki verða af því.
Ég taldi mig meira að segja ekki eiga
rétt á þjónustu sjóðsins. Á frídegi sínum
síðastliðið vor stakk hún upp á því að við
færum saman á skrifstofu sjóðsins og ég
samþykkti það.“
Frábærar móttökur
Hjá Starfsendurhæfingarsjóði var afar
vel tekið á móti þeim, að því er Stefán
greinir frá. ,,Þar tók yndislegt fólk á
móti okkur. Pantaður var tími fyrir
mig hjá Öldu Ásgeirsdóttur, ráðgjafa
í starfsendurhæfingu hjá FIT, Félagi
iðn- og tæknigreina. Við fórum beint frá
Þetta segir Stefán Hermannsson húsa-
smíðameistari sem varð að loka fyrirtæki
sínu í kjölfar hrunsins 2008. ,,Ég var
ásamt öðrum með fyrirtæki sem þjónustaði
byggingariðnaðinn en hann datt út í heilu
lagi við hrunið. Fyrirtæki sem við höfðum
unnið lengi fyrir og áttum inni hjá lentu í
greiðslustöðvun. Við réðum ekki við þetta
og í janúar 2009 lokuðum við fyrirtækinu
sem varð svo gjaldþrota.“
Að sögn Stefáns fór hann á atvinnu-
leysisbætur og sótti um fjölda starfa.
,,Það var hins vegar ekkert að fá. Ég
koðnaði niður. Ég var bara heima undir
sæng og reyndi að láta mig hverfa. Ég
átti jafnframt við áfengisvanda að stríða
og svo kom að því að ég gerði mér grein
fyrir því að ég yrði að fara í meðferð.“
Reif mig niður
Ákvörðunina tók Stefán síðla sumars
2009. ,,Fyrir áfengissjúkling er það
rosalegt uppgjör á lífinu og erfiður
þröskuldur að fara yfir. Það keyrði mig
alveg niður í götu. Ég sökk dýpra og
dýpra. Ég reif mig niður fyrir það hvað
ég hefði verið vondur við fólk alla ævi og
valtað yfir það með frekju, stjórnsemi og
hroka. Mér fannst ég ekki eiga neitt gott
Ráðgjafinn
bjargaði lífi mínu
Stefán Hermannsson húsasmíðameistari
skrifstofu Starfsendurhæfingarsjóðs til
Öldu. Það vildi nefnilega svo til að flug
sem hún hafði ætlað í hafði fallið niður
vegna gossins í Eyjafjallajökli. Hún var
sem sagt með óbókaðan tíma þess
vegna.“
Móttökurnar hjá Öldu voru ekki síðri en
á skrifstofu Starfsendurhæfingarsjóðs,
að sögn Stefáns. ,,Það var yndislegt að
tala við hana. Hún togaði ýmislegt upp úr
mér. Hún spurði til dæmis hvað ég hefði
fengist við og hverju ég hefði gaman af.
Ég skildi nú ekki til hvers hún var að
spyrja um það en mér þótti vænt um að
hún skyldi sýna mér áhuga. Hún benti
mér á ég byggi yfir ákveðnum styrk og
hefði ýmsa möguleika. Ég varð hissa því
að ég vissi ekki til þess.“
Gríðarleg hjálp
Eftir samráð við Stefán pantaði ráðgjafinn
tíma hjá sálfræðingi fyrir hann. ,,Ég fann
að eitthvað þyrfti að gerast og samþykkti
það. Sálfræðingurinn passaði mér reynd-
ar ekki þannig að Alda pantaði tíma hjá
öðrum sem ég var eiginlega sjálfur búinn
að finna. Þessi sálfræðingur hjálpaði mér
gríðarlega mikið. Ég væri ekki sá sem ég
er í dag ef ég hefði ekki notið þjónustu
Ráðgjafinn bjargaði lífi mínu. Ég er ekki viss um að ég væri ofan jarðar hefði ég
ekki notið frábærrar aðstoðar hans. Lífsviðhorf mitt er allt annað og ég lít nú
framtíðina björtum augum.“