Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 51

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 51
51www.virk.is ATVINNULÍF Dæmi um almenna aðlögun á vinnustað: • Hönnun vinnustaðarins og vinnuferla • Aðgengi að vinnustaðnum • Tæknilegar lausnir • Þjálfun og símenntun • Sveigjanlegur vinnutími – gildi á vinnustaðnum • Möguleiki á starfsþjálfun • Starfsvíxlun, möguleiki á mismunandi verkefnum Þegar þörf er á sérstakri aðlögun á vinnu- stað eða áætlun um endurkomu til vinnu eftir langvarandi veikindi eða slys, er mikilvægt að vera í góðu sambandi við starfsmanninn og móta aðlögunarferlið með honum. Oft er nauðsynlegt að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk sem hefur komið að meðferð einstaklingsins og ráðgjafa í starfsendurhæfingu sem geta leiðbeint bæði starfsmanninum og yfirmanni hans í aðlögunarferlinu á vinnustaðnum. Dæmi um einstaklingsmiðaða aðlögun á vinnustað: Samtal um vinnuumhverfið, líðan • og starfsgetu Gera (formlega) tímabundna áætlun • um aðlögun Velja verkefni sem eru heppileg • miðað við getu einstaklingsins hverju sinni – oftast léttari verkefni eða hluta af núverandi verkefnum Breyta vinnuskipulagi – vinnutíma, • vinnuhraða, vinnuflæði o.fl. Tæknilegar lausnir – þarf t.d að • breyta vinnurými eða aðbúnaði? Hjálpar- og léttitæki • Einstaklingsmiðaður stuðningur • Handleiðsla fyrir einstaklinginn eða • hópinn Upplýsa samstarfsmenn um ferlið • Eftirfylgd – endurmat – ný áætlun• Ávinningur af fjarvista- stjórnun og endurkomu til vinnu Ávinningur af fjarvistastjórnun og mark- vissri áætlun um endurkomu til vinnu felst fyrst og fremst í betri nýtingu tíma og fjármuna, ánægðum starfsmönnum, aukinni fyrirtækjahollustu og velferð og ánægðum starfsmönnum. Fjarvistastefna er stjórntæki mannauðsstjórnunar þar sem viðhorf, menning og viðmið í stjórnun starfsmannamála eru skilgreind og kynnt fyrir öllum starfsmönnum. Starfmenn eru upplýstir um viðhorf til veikindafjarvista og endurkomu til vinnu eftir veikindi og slys og þau viðmið sem vinnustaðurinn setur. Starfsmenn fá eðlilega umhyggju og hvatningu í veikindum sínum og stuðning við endurkomu til starfa enda getur vinnan verið hluti af bataferli þeirra. Fjarvistir starfsmanna eru skráðar og skoðaðar reglulega, heildarfjarvistatölur eru ekki feimnismál þær eru rekstrartölur. Fjarvistastjórnun og markviss endurkoma til vinnu eftir veikindi og slys ætti að vera eðlilegur þáttur í stjórnun hverrar skipulagsheildar. Flestir eyða stórum hluta ævi sinnar í vinnunni eða við verk- efni sem tengjast henni. Vinnuumhverfið, skipulag og stjórnun á vinnustað hefur mikil áhrif á líðan og velferð einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Til að ná árangri í því að minnka langtímaveikindi og örorku á Íslandi þurfa allir sem koma að velferð einstaklinga að vinna markvisst að viðhorfabreytingu og samræmingu í velferðarkerfinu. Mismunandi kerfi innan velferðarkerfisins þurfa að vinna saman og styðja hvert við annað, efla þarf kerfislæga hvata og ryðja hindrunum úr vegi svo draga megi markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna veikinda og varanlegrar örorku. Á þann hátt náum við þeirri framtíðarsýn „að viðhorf á vinnustöðum séu þannig að gert sé ráð fyrir að allir eigi hlutverk í atvinnulífinu þrátt fyrir skerta starfsgetu af ólíkum ástæðum.“ Um höfundinn Svava Jónsdóttir er sérfræðingur hjá Starfsendurhæfingarsjóði. Hún er hjúkrun- arfræðingur að mennt með starfs- mannaheilsuvernd sem sérgrein, auk framhaldsmenntunar á sviði mannauðs- mála, verkefnastjórnunar og leiðtoga- þjálfunar. Hún hefur starfað við starfs- endurhæfingu í Svíþjóð og síðastliðin tíu ár hefur hún sinnt ráðgjafastörfum á sviði vinnuverndar, öryggismála og heilsuverndar starfsmanna. Heimildaskrá Behandling av sygefravær er en sund forretning. 2006. Beskæftigelsesministeriet, Danmörk. Fakta om Hälsa och framtid, delstudie 4, 2005-2008. E. Virgård, M.Waldeneström, F. Bengtsson, M. Svantegren, L. Ekenvall, G. Ahlberg, HoF-study group, Långtidssjukskrivning, rehabilitering och återgång i arbete- processer och resultat hos företag inom privat sektor. Hälsa och framtid, ett forskningsprojekt om långtidsfriska företag. Sótt 8. febrúar 2011 af http://info.uu.se/press.nsf/5E13BA1E 84441C71C12572FF002578DD/$Fil e/H%C3%A4lsa%20och%20framtid%20 -%20Delstudie%204.pdf. Kristinn Tómasson. 2006. Geðheilbrigði á vinnustöðum. Möguleikar til forvarna og ráðgjafar. Geðvernd. Árgangur, 1. tbl. bls. 10. Nordiska strategier för att begränsa sjukfråvaro. Socialförsäkringsrappor. 2008:1. Försäkringskassan Sverige. Sótt 30. október 2009 af www.tr.is. Resultater af sygefraværsforskning 2003- 2007. Merete Labriola, Thomas Lund, Karl Bang Christensen, Det Nationale Forskningscenter for Arbejdsmiljø, København. Sótt 19.nóvember. 2009 af www. arbejdsmiljoforskning.dk/upload/ resultater_sygefravaer.pdf. Sukanya Mitra. Managing Absenteeism and Presenteeism in the Workplace. 2008. Sótt 19.nóvember 2009 af www.cpa2biz.com/Content/media/ PRODUCER_CONTENT/Newsletters/ Articles_2008/Careers/Workplace.jsp. Veikindafjarvistir 2000-2006 samkvæmt gagnagrunni InPro 2008. Samtök atvinnulífsins. Sótt 19. nóvember 2010 af www.sa.is. Veikindafjarvistir á Norðurlöndunum. 2003. Vinnueftirlitið, Reykjavík. 1. Útgáfa. Sótt 19.nóvember 2009 af www. vinnueftirlit.is. Waddell, G., Burton,K. og Kenndall, N. 2008, Vocational Rehabilitation: What Works, For Whom, and When. Sótt 6.desember 2009 af http://www. workingforhealth.gov.uk/Resources/.

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.