Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 52
52 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
„Samstarf okkar við VIRK er eiginlega braut-
ryðjendasamstarf. Ég greip boltann fljótlega eftir
að VIRK tók til starfa, kynnti mér starfsemina
og fannst mikil þörf á henni. Ég vonast til að
VIRK eigi eftir að þróast enn frekar í framtíðinni
á jákvæðan hátt,“ segir Sigríður.
Þegar hún er spurð hvernig þetta samstarf
hafi byrjað, segir hún. „Það komu stundum
inn á borð til mín og annarra stjórnenda erfið
veikindamál. Í sumum tilfellum áttum við lítil
sem engin úrræði. Stuttu eftir að VIRK kom
til sögunnar kom ég að máli starfsmanns sem
hafði verið í löngu veikindaleyfi og var farinn að
sjá fram á starfslok af heilsufarsástæðum. Ég
hringdi því til VIRK og leitaði ráða. Þar var mér
bent á fjarvistarsamtöl sem þau voru að þróa
og ég gat nálgast á heimasíðu þeirra. Mér var
bent á að prófa þetta samtal með endurkomu
til vinnu í huga. Einnig var mér boðið að senda
starfsmanninn í ráðgjöf hjá VIRK. Mér leist
mjög vel á hvernig fjarvistarsamtalið, sem í
dag er kallað samtal um endurkomu til vinnu
eða ETV-samtal, var byggt upp. Ég bauð
starfsmanninum að koma til mín í viðtal og
sendi honum spurningarnar áður, enda fannst
mér siðferðilega rétt að hann vissi um hvað
við ætluðum að ræða. Við vorum því bæði vel
undirbúin þegar við hittumst. Í kjölfarið fékk
starfsmaðurinn tíma hjá ráðgjafa VIRK og er
skemmst frá því að segja að þessi einstaklingur
er í vinnu í dag,“ greinir Sigríður frá.
„Ég vil gera svona samtal um endurkomu til
vinnu jákvætt og uppbyggjandi. Það er ekki
verið að ræða fjarveru starfsmannsins vegna
veikindanna heldur er markvisst verið að búa
hann undir að koma aftur til starfa. Í flestum
tilfellum hafa starfsmenn tekið þessu samtali
afar vel, enda vita þeir áður en þeir koma til mín
hvað við erum að fara að ræða um. Viðkomandi
einstaklingur sér að það er verið að gera eitthvað
í hans málum með jákvæðu viðhorfi. Ég legg
áherslu á að bæta líðan einstaklingsins, að finna
tækifæri fyrir hann og úrræði. Virkni er öllum til
góðs,“ segir Sigríður.
Fólk finnur hvatningu
„Ég hef oft á tíðum milligöngu um að
starfsmaður fái tíma hjá ráðgjafa hjá VIRK
en sumir starfsmenn kjósa að panta sér tíma
sjálfir. Yfirleitt tek ég ljósrit af niðurstöðunni úr
ETV-samtalinu sem viðkomandi getur þá haft
með sér til ráðgjafans en það auðveldar öllum
að taka næstu skref í málinu. Fólk hefur trú á
Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri hjá Mosfellsbæ
Virkni
er öllum til góðs
Sigríður Indriðadóttir, mannauðsstjóri hjá Mosfellsbæ, ber umhyggju fyrir starfsmönnum
bæjarins sem eru á sjötta hundrað. Það er því nóg að gera í starfi hennar. Sigríður hefur nýtt
sér ráðgjöf hjá VIRK þegar erfið veikindi hafa komið upp í starfsmannahópnum og er afar
ánægð með þá þjónustu.