Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 54
54 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
Inngangur
Við verjum um það bil þriðjungi fullorðinsævinnar
í vinnunni og fyrir flesta er vinnan mikilvæg vegna
þeirra tekna sem hún skapar og oft ekki síður
vegna félagslegra tengsla. Margir eignast þar
sína bestu vini og upplifa þar bæði sæta sigra og
beiska ósigra.
Vinnan hefur einnig áhrif á heilsu okkar og er
stór þáttur í sjálfsmynd og vellíðan einstaklinga,
hvað þeir gera, hverju þeir fá áorkað og hvernig
samskipti þeir eiga við aðra. Ef einstaklingur getur
ekki mætt til vinnu í lengri tíma, eða missir vinnu
vegna veikinda eða slyss, hefur hann ekki bara
„misst“ heilsuna heldur líka mikilvæg félagsleg
tengsl. Því lengur sem ástandið varir því meiri
er hættan á því að hann eigi ekki afturkvæmt á
vinnumarkað.
Starfsendurhæfing felst meðal annars í að
aðstoða fólk við að vera í, fara aftur í eða viðhalda
ráðningarsambandi eftir veikindi eða slys og
koma í veg fyrir eða seinka því að fólk hverfi af
vinnumarkaði af heilsufarsástæðum.
Starfsendurhæfing er fjölfaglegt ferli þar sem
bæði er tekið tillit til þess sjúkdóms eða slyss sem
veldur upphaflega skertri starfsgetu og einnig er
tekið tillit til hindrana gegn vinnu, hjá einstaklingi,
á vinnustað, í heilbrigðiskerfinu og í samfélaginu.
Hindranir fylgja gjarnan í kjölfarið á langvinnri
veikindafjarvist og hafa oft afgerandi áhrif á hvort
einstaklingurinn fer aftur í vinnu eða ekki.
Í þessari grein verður fjallað um áhrif hindrana
á atvinnuþátttöku, mikilvægi atvinnutengingar
í starfsendurhæfingu og um hvaða þættir hafa
forspárgildi um árangur við endurkomu einstaklinga
til vinnu eftir veikindi eða slys.
Áhrif velferðarkerfisins á þátttöku á
vinnumarkaði
Velferðarkerfið hér á landi á meðal annars að
tryggja mannréttindi og hagsmuni fólks með
skerta starfsgetu. Það er flókið samsafn ólíkra
bótagreiðslna, styrkja, afslátta og skatta. Í
tímans rás hafa orðið til skaðlegar mótsagnir og
hindranir í kerfinu sem vinna gegn markmiðum
um virka þátttöku á vinnumarkaði og endurkomu
til vinnu eftir veikindi og slys. Dæmi um þetta er
félagslegt framfærslukerfi sem getur í raun hvatt
fólk til brotthvarfs af vinnumarkaði vegna þess
að til skemmri tíma litið getur því verið betur
borgið fjárhagslega með því að vera á bótum
en í vinnu. Þetta getur verið vegna lágra launa,
jaðaráhrifa bóta, áhrifa barnalífeyris, afsláttar af
Vinna, velferð
og veikindi
Ingibjörg Þórhallsdóttir sérfræðingur hjá VIRK
Upphafleg ástæða fyrir veikindafjarvist kann
að vera sjúkdómur eða slys, en ástæða fyrir því
að viðkomandi fer ekki aftur í vinnu er oft
af öðrum toga.“