Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 55

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 55
55www.virk.is ATVINNULÍF þjónustugjöldum, menntunarskorts eða annarra hamlandi þátta við að fá (vel) launað starf (Harder og Scott, 2005). Að auki getur fyrirkomulag bótaréttar beinlínis hindrað bata og endurkomu til vinnu (Main og Williams, 2002). Í samanburðarrannsókn sex landa, þar sem skoðuð var þriggja ára endurkoma til vinnu hjá fólki með langvinna bakverki, kom í ljós að réttindi fólks á vinnumarkaði og fyrirkomulag bótaréttar höfðu, ásamt vali á úrræðum, afgerandi áhrif á endurkomu til vinnu (Anema o.fl., 2009). Í annnarri rannsókn var skoðað hvaða kerfislægir hvatar og hindranir væru til staðar sem hefðu áhrif á endurkomu bótaþega til vinnu. Áhugavert var að í Hollandi, þar sem kerfislægir hvatar eru innbyggðir fyrir bæði atvinnurekendur og starfsmenn, var árangur af endurkomu til vinnu marktækt meiri en annarsstaðar (International Social Security Association, 2001). Þar eru bæði atvinnurekandi og starfsmaður skyldaðir með lögum til að vinna að markvissri endurkomu til vinnu (Reijenga, 2003). Hvatinn til þátttöku er í báðum tilfellum fjárhagslegs eðlis og þar má ekki segja starfsmanni upp fyrr en í fyrsta lagi tveimur árum eftir upphaf veikindafjarveru. Í Svíþjóð greiða atvinnurekendur starfs- mönnum sínum laun í veikindum í tvær vikur áður en nokkurs konar opinber áfallatryggingasjóður tekur við greiðslunum. Þessar tvær vikur eru taldar vera hvati fyrir atvinnurekandann til að hann geri hvað hann getur til að aðstoða einstaklinginn við að koma eins fljótt aftur til vinnu og verða má (Selander, 2006). Síðan færist hvatinn yfir á áfallatryggingasjóðinn. Hér á landi getur starfsmaður hins vegar verið í veikindafjarvist á launum hjá atvinnurekanda í marga mánuði og víða virðist sem lítið sé gert til að hafa samband við starfsmanninn og kanna hvernig honum líður, hvað þá að kannað sé með hvaða hætti megi auðvelda honum endurkomu til vinnu. Atvinnurekandinn telur jafnvel að hann megi ekki hafa frumkvæði að samskiptum við starfsmann í veikindafjarvist. Þess eru dæmi að starfsmaður hreinlega gleymist, fái launin sín í marga mánuði en upplifi afskiptaleysi atvinnurekandans að öðru leyti sem höfnun eða skort á umhyggju. (Ingibjörg Þórhallsdóttir, 2010) Það er mikilvægt að grípa snemma inn í fjarvistaferlið með stuðningi fyrir starfsmanninn því að tíminn skiptir hér miklu máli. Því lengur sem starfsmaður er frá vinnu vegna veikinda, því minni líkur eru á að hann snúi nokkru sinni aftur til vinnu (Waddell og Burton, 2006). Í sumum tilfellum ræðst veikindavottorð og mat á starfsgetu meira af veikinda- eða bótarétti einstaklingsins en af því hvort og hvað hann getur unnið. Í langvinnum veikindum er endurkoma til vinnu oft miðuð við að einstaklingurinn sé búinn með veikindarétt hjá atvinnurekanda eða bótarétt en ekki við það að hann sé tilbúinn í einhverja vinnu. Lengri starfsendurhæfingarúrræði hér á landi virðast líka oft hafa verið skipulögð með hliðsjón af hámarksrétti til greiðslu endurhæfingarlífeyris. Kostnaður atvinnulífsins vegna veikinda- fjarvista er hár. Fyrir utan einstaklingana, sem tapa bæði tekjum og möguleikum á starfsframa eða starfsþróun, tapa fyrirtækin vegna aukins launakostnaðar, aukavinnu, nýliðunar og minni fram- leiðni. Í skýrslu um velferðarkerfið, sem lögð var fyrir bresku ríkisstjórnina árið 2008 (Black, 2008), kom fram að árlegur samfélagslegur kostnaður vegna veikindafjarvista og langvinnra veikinda í Bretlandi er hærri en samanlagður kostnaður breska heilbrigðiskerfisins. Ef þessar upplýsingar eru yfirfæranlegar á íslenskt samfélag er ljóst að sambærilegur kostnaður hér á landi er ríflega hundrað milljarðar á ári. Það er því til mikils að vinna að minnka hann með þeim ráðum sem tiltæk eru og hafa verið reynd með góðum árangri annars staðar. Til að ná því markmiði að fólk geti verið í vinnu þrátt fyrir tímabundna eða varan- lega skerðingu starfsgetu vegna veikinda eða slysa þarf að breyta bæði viðhorfum og ýmsum kerfislægum þáttum, svo sem lögum og reglugerðum, í samræmi við nútíma þekkingu á mikilvægi vinnunnar í bataferli einstaklinga. Skert starfsgeta og atvinnuþátttaka Upphafleg ástæða fyrir veikindafjarvist kann að vera sjúkdómur eða slys en ástæðan fyrir því að viðkomandi fer ekki aftur til vinnu er oft af öðrum toga (Waddell o.fl, 2008). Starfsgeta er afstæð en mikilvæg í umræðunni um virkni á vinnumarkaði. Viðhorf og þekking á áhrifum sjúkdóma á getu einstaklinga til þátttöku í atvinnulífinu hefur breyst á undanförnum áratugum. Í mörgum tilfellum má beita skipulegum aðgerðum við endurkomu til vinnu og fyrirbyggja eða takmarka bótaþörf þeirra sem ella hefðu ekki getað tekið fullan þátt í atvinnulífinu. Í stað þess að sjúkdómurinn sjálfur sé ákvarðandi um vinnugetu einstaklinga og framfærslu er nú í vaxandi mæli talið að aðrir þættir hjá einstaklingnum sjálfum, í umhverfinu, í vinnunni, í heilbrigðiskerfinu, í þekkingu stjórnenda, menningu og viðhorfum hafi meiri áhrif. Hin hefðbundna aðferð í endurhæfingu eftir langvinn veikindi eða slys hefur verið að „laga“ starfsmanninn „einhvernveginn“ svo að hann geti tekist á við gamla starfið, nýtt starf eða bara við lífið sjálft. Ef ekki tekst að „laga“ starfsmanninn og koma honum til fullrar heilsu áður en rétti til veikindalauna lýkur og tímabundinn bótaréttur rennur út er hann gjarnan metinn óvinnufær og fær á sig „öryrkjastimpil“. Orðið endurspeglar neikvætt og svartsýnt viðhorf til getu einstaklingsins. Samkvæmt orðanna hljóðan þýðir það að hann geti í raun aðeins haft örlítið fyrir stafni. Í stað þess að horfa eingöngu til þess sem einstaklingurinn getur ekki, er nú lögð áhersla á það sem hann getur og starfsgeta hans metin út frá því og þeirri vinnu sem hann gæti unnið miðað við þá styrkleika sem hann býr yfir. Einstaklingur sem þarf að hætta að vinna við framleiðslu vegna ofnæmisvaka í umhverfinu eða getur ekki unnið á leikskóla vegna bakverkja þarf ekki endilega að vera ófær til allrar vinnu. Hann getur einfaldlega ekki unnið þessi tilteknu störf eða það þarf að breyta

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.