Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 66

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 66
66 www.virk.is A TV IN N U LÍ F ATVINNULÍF Vinna eykur sjálfstraust og lífsgæði. Heilbrigt vinnuumhverfi getur komið í veg fyrir geðraskanir og aukið tækifæri til að mæta í, viðhalda eða snúa aftur til vinnu meðan verið er að upplifa slíka röskun. Hvers vegna er góð geðheilsa mikilvæg fyrir farsælt fyrirtæki? Vinna er öllum nauðsynleg. Markmiðið með vinnunni er að skapa velmegun og vellíðan okkur sjálfum til handa, fjölskyldum okkar, fyrirtækjum sem við vinnum hjá og samfélagi því sem við búum í (Kristinn Tómasson, 2006). Vinnustaðir eru fjölbreyttir. Þeir eru mismunandi að stærð, starfsemin er ólík hvort sem þeir eru í opinbera geiranum eða reknir af einkaaðilum. Þrátt fyrir þennan mismun, er vinnan ómissandi þáttur í lífi fullorðins fólks. Á undanförnum áratugum hefur eðli starfa breyst í Evrópu. Færri störf eru skilgreind sem líkamleg störf, en meira er um andlegar og tilfinningalegar kröfur til starfsmanna (Baumann, Muijen og Gaebel, 2010). Fjárfesting í mannauði þýðir líka að fjárfesta þarf í heilsu starfsmanna og velferð á vinnustaðnum. Byggja þarf upp öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi þar sem grunnatriði heilbrigðs lífernis eru í fyrirrúmi. Nýsköpunarkrafturinn er kjarni hvers farsæls fyrirtækis. Í síbreytilegu vinnu- umhverfi þurfa starfsmenn að vinna af dug, sýna aðlögunarhæfni, vera sveigjanlegir gagnvart breytingum og afla sér símenntunar. Ætla má að fyrst og fremst áhugasamir starfsmenn sem er annt um heilsu og líðan sína, standist þessar áskorarnir þegar til lengdar lætur. Það er því mikilvægt að hlúa vel að einstaklingnum. Nauðsynlegt er að grípa til úrræða sem snerta fyrirtækið í heild, eiga sér traustar rætur í starfsandanum og beinast að líkamlegri og andlegri velferð allra starsmannanna (Vinnan í takt við lífið, 2010). Margar ástæður eru fyrir því að vinnuveitendur ættu að gera geðrækt að forgangsmáli. Geðheilsa starfsmanna hefur mikil áhrif á annað heilsufar og er mikilvæg forsenda fyrir farsælum rekstri. Mörg fyrirtæki eru farin að átta sig á að starfsmennirnir verða að standa heils hugar og heilir heilsu að baki fyrirtækinu ef því á að vegna vel (Knifton, Watson, Besten, Grundemann og Dijkman, 2009). Á síðustu árum eiga veikindafjarvistir í sífellt auknum mæli rót sína að rekja til geðrænna vandamála. Árið 2002 var 59% kostnaðar vegna veikindadaga vegna geðraskana og einkenna frá stoðkerfi. Veikindafjarvistir tengjast heilsu einstaklinganna og þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra í vinnunni. Danskar rannsóknir benda til þess að eitthvað í vinnuumhverfinu skýri um 1/3 fjarvistadaga. Reynslan sýnir að unnt er að draga úr fjarvistum með því að laga vinnuna að starfsmanninum. Með því móti má draga úr um helmingi fjarvista sem rekja má til skertrar vinnufærni. Aðgerðirnar þurfa því að vera almennar og beinast að því að bæta vinnuumhverfið og að draga úr langtímafjarvistum. Aðrar aðgerðir geta líka dregið úr fjarvistum, svo sem heilsuefling á vinnustað (Vinnueftirlitið, 2003). Vinnustaðurinn getur boðið upp á heilbrigðan starfsanda og heilsusamlegt umhverfi. En það getur verið töluvert átak fyrir vinnuveitendur og starfsmenn að gera hann að heilnæmum vinnustað fyrir líkama og sál. Streita Sálræn og félagsleg vandamál, þar með talin steita, eru meðal meginorsaka vinnufjarvista nú á dögum. Talið er að í Evrópu þjaki steita meira en fjórða hvern starfsmann og að streita eigi sök á rúmlega helmingi allra vinnufjarvista. Þetta kostaði Evrópusambandsríkin 20 milljarða evra (3,2 billjónir íslenskra króna) árið 2002
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.