Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 75
75www.virk.is
ATVINNULÍF
setja sér sjálfir persónuleg markmið sem
þeir vilja ná á þessu þriggja mánaða
tímabili og gera vinnuáætlun með aðstoð
verkefnisstjóra og sínum félagsvini.
Ritað er undir félagsvinasamning þar
sem markmið sambandsins koma
fram. Verkefnisstjóri skoðar árangur
þátttakenda á miðju tímabilinu og í lok
þess. Markmiðin geta fjallað um að
afla nýrrar þekkingar, efla persónulega
eiginleika eða breyta ákveðnum venjum.
Við setningu markmiðanna er mikilvægt
að atvinnuleitandinn skoði þarfir sínar
í víðu samhengi og meti stöðu sína,
umhverfi sitt, sérþekkingu sína og
eiginleika.
Ávinningur þátttakenda
Ávinningur atvinnuleitanda er að
viðkomandi einstaklingur fær stuðning
til að koma hugmyndum sínum í
framkvæmd, getur rætt málin í trúnaði
og fær ferska sýn á aðstæður sínar.
Hann eflir sjálfstraust sitt og sjálfsmynd,
fær leiðbeiningar um þau úrræði
sem í boði eru, getur komið auga á
ný og spennandi tækifæri og getur
þannig aukið atvinnumöguleika sína.
Ávinningur sjálfboðaliða verkefnisins er
að þeir fá nýja sýn á eigin aðstæður og
lifnaðarhætti, deila hæfileikum sínum
og þekkingu og sjá aðra manneskju
styrkjast. Auk þess fá sjálfboðaliðarnir
aðgang að tengslaneti við aðila sem bjóða
úrræði til styrkingar atvinnuleitendum,
öðlast leiðbeinendahæfileika og styrkja
leiðtogahæfileika sína sem hægt er að
nýta í öðru samhengi.
Árangur og mælikvarðar
Eftirfylgni og mat á árangri eru
mikilvægir þættir verkefnisins. Þrír
hópar sjálfboðaliða hafa lokið 28 stunda
sjálfboðaliðanámskeiði sem ætlað er að
undirbúa þá fyrir félagsvinasamböndin.
Markmið námskeiðsins er að þátt-
takendur geri sér grein fyrir þeirri
ábyrgð og þeim skyldum sem fylgja
því að vera félagsvinur, geti leiðbeint
öðrum atvinnuleitendum í starfsleit
sinni, hafi þekkingu á þeim réttindum,
skyldum og úrræðum sem eru í boði fyrir
atvinnuleitendur, öðlist sjálfstraust og leið-
togahæfileika og öðlist ferska sýn á eigin
getu og hæfileika sem styrkir þá sjálfa í
atvinnuleitinni. Atvinnuleitendur fara á
tveggja stunda undirbúningsnámskeið
áður en þeir eru tengdir við sjálfboðaliða
þar sem farið er yfir hugmyndafræði
verkefnisins, markmiðssetningar og gerð
vinnuáætlunar.
Fyrsti hópur félagsvinapara, tilrauna-
hópur verkefnisins, lauk störfum í maí
2010. Mat á árangri hópsins fór fram
með viðtölum, spurningarlistum og
rýnihópum. Viðamikil lokaskýrsla var
gerð um fyrsta hópinn og í kjölfarið var
mótaður skýr rammi fyrir verkefnið og
mælikvarðar á árangri þróaðir enn frekar.
Annar hópur félagsvinapara er að ljúka
störfum í janúar og þriðji hópurinn lýkur
störfum í mars. Niðurstöður mælinga fyrir
hóp tvö verða birtar í apríl 2011 og fyrir
hóp þrjú í júní 2011.
Virkni og styrkur þeirra sem eru í
atvinnuleit er metinn í upphafi sam-
bands, á miðju tímabilinu, í lok
þess og þremur mánuðum eftir að
félagsvinasambandi lýkur. Mælingarað-
ferðirnar eru einstaklingsviðtöl, staðlaðir
spurningalistar (meðal annars próf sem
mælir döfnun og lífsánægju), hópviðtöl,
rýnihópar og athuganir á þátttöku.
Skoðað er hvort að atvinnuleitendur
hafi náð persónulegum markmiðum
sínum sem þeir settu sér í upphafi
félagsvinasambandsins og tilgreind
eru í félagsvinasamningi þeirra. Sá
heildarárangur sem verkefninu er ætlað
að skila atvinnuleitendum er aftur á móti
þríþættur.
Í fyrsta lagi er lögð áhersla á •
það að atvinnuleitendur séu í
virkri atvinnuleit og lendi síður
á örorku. Skoðuð er þátttaka á
vinnumarkaði sex mánuðum frá