Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 78

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 78
78 www.virk.is U P P LÝ S IN G A R UPPLÝSINGAR Ráðgjöf í starfsendurhæfingu eftir veikindi eða slys er veigamikið verkefni sem krefst þekkingar á afleiðingum slysa og sjúkdóma fyrir einstaklinga á vinnumarkaði og ennfremur á því hvernig best má stuðla að endurkomu fólks til vinnu. Starfið krefst mikillar hæfni í mannlegum samskiptum, skipulags- hæfni, frumkvæðis, leiðtogahæfni, þekkingar á atvinnulífinu og getu til hvatningar og ýmissa annarra þátta. Strax og VIRK hóf að ráða ráðgjafa í starfsendurhæfingu til starfa var ljóst að þrátt fyrir góðan og fjölbreyttan bakgrunn ráðgjafanna, sem flestir eru með að minnsta kosti eina eða tvær háskólagráður að baki og menntaðir ýmist í heilbrigðis- eða félagsgreinum, skorti þá flesta sérhæfða þekkingu og reynslu sem tengist starfsendurhæfingu og endurkomu til vinnu. Til að bregðast við þessu skipulagði VIRK fræðsluáætlun fyrir ráðgjafa sína sem byggði á þarfagreiningu fyrir þetta nýja starfsheiti. Eftir að hafa boðið ráðgjöfum VIRK á vegum stéttarfélaganna upp á mánaðarlega fræðslu veturinn 2009- 2010, um efni sem tengdist starfinu, svo sem hugmyndafræði, verkferla, persónuvernd, lög og réttindi á vinnu- markaði, notkun upplýsingakerfis, andlegar og líkamlegar ástæður skertrar starfsgetu ásamt ýmsu öðru var ákveðið að byggja jafnframt upp fræðslu sem gæti skilað ráðgjöfunum formlegri viðurkenningu að henni lokinni. Ýmsir valkostir í menntunarmálum voru skoðaðir Það var ljóst að engin heild- stæð, hagnýt og formleg fræðsla var í boði á þessu sviði á Íslandi. Niðurstaðan var sú að leita fanga erlendis og skoða hvað var þar í boði. Eftir nokkra leit var ákveðið að leita í smiðju hjá National Intitute of Disbility Management and Research (NIDMAR) sem býður upp á stöðluð og hagnýt námskeið í starfsendurhæfingu og byggir innihaldið á stöðlum í starfsendurhæfingu frá International Disability Management Standards Council (IDMSC). Starfsendurhæfingarsjóður undirritaði samstarfssamning um afnot fræðsluefnis frá NIDMAR í Kanada haustið 2010. Samningurinn kveður meðal annars á um aðgang að sérhæfðu námsefni fyrir ráðgjafa í starfsendurhæfingu. Námsefnið verður notað bæði óbreytt og lagað að íslenskum aðstæðum eftir atvikum, ásamt íslensku ítarefni. NIDMAR var stofnað árið 1994 af stéttarfélögum, atvinnurekendum, trygg- ingafélögum, menntastofnunum og sérfræðingum í endurhæfingu og er í dag þekkt á alþjóðavettvangi sem frumkvöð- ull í hugmyndafræði um vinnutengda endurhæfingu. Í stjórn þess sitja fulltrúar frá þremur heimsálfum. Ástæður fyrir fjölbreyttum tengingum stofnenda og stjórnar eru meðal annars þær að í rannsóknum hefur verið sýnt fram á að vinnutenging er ein árangursríkasta aðferðin við að endurhæfa fólk til starfa og viðhalda starfsgetu þess, og minnka þannig félagslegan, persónulegan og efnahagslegan kostnað vegna skertrar starfsgetu. Ráðgjafar í starfsendurhæfingu á vegum stéttarfélaganna sækja fræðslu mánaðar- lega hjá VIRK og er gert ráð fyrir að árlega verði boðið upp á 6-8 námskeið frá NIDMAR en þeim fylgir nokkur námsvinna utan fræðsludaga. Náms- efnið er meðal annars hugsað til að styðja við hugmyndafræði VIRK og styrkja áherslur á vinnutengingu í starfinu, gera ráðgjöfunum kleift að sinna starfi sínu betur og enn fremur til að undirbúa þá sem það vilja undir alþjóðlega viðurkenningu á sviði starfsendurhæfingar, en hún byggir á niðurstöðu úr stöðluðum prófum sem þreytt eru árlega í þeim löndum sem bjóða upp á námsefnið. Menntun ráðgjafa VIRK í starfsendurhæfingu Ingibjörg Þórhallsdóttir sérfræðingur hjá VIRK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.