Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Blaðsíða 37
37www.virk.is
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Starfsendurhæfingarferli hjá VIRK hefst á því að einstaklingur hittir ráðgjafa
sem kortleggur styrkleika hans og hindranir fyrir atvinnuþátttöku í svokölluðu
grunnmati. Í grunnmati vinnur ráðgjafi með teymi sérfræðinga sem skoða mál
einstaklinga og meta þörf fyrir inngrip og úrræði. Þegar mál eru flókin, vandi
fjölþættur og/eða langt um liðið síðan einstaklingur var á vinnumarkaði er
honum beint í sérhæft mat. Það er þverfaglegt mat þar sem fram fer nánari
greining á stöðu einstaklings varðandi starfsendurhæfingu, en rannsóknir hafa
sýnt að þverfagleg nálgun er mikilvæg til að ná árangri. Að matinu koma
utanaðkomandi sérfræðingar sem eru læknar, sálfræðingar, sjúkraþjálfarar,
iðjuþjálfar og félagsráðgjafar. Það fer eftir þeim hindrunum sem einstakling-
ur glímir við hvaða fagaðilar koma að matinu. Matsteymið setur upp mark-
vissa starfsendurhæfingaráætlun sem miðuð er við þarfir hvers og eins og er
niðurstaðan kynnt einstaklingi á skilafundi áður en áætlunin er sett í gang.
Gunnar K. Guðmundsson, yfirlæknir starfsendurhæfingarteymis á Reykjalundi,
Ragnhildur Jónsdóttir, sjúkraþjálfari við endurhæfingardeild Sjúkrahúss
Akureyrar á Kristnesi, Rúnar H. Andrason, yfirsálfræðingur í verkjateymi á
Reykjalundi og Þórunn Gunnarsdóttir, iðjuþjálfi á Reykjalundi, eru öll sér-
fræðingar í þverfaglegum matsteymum VIRK. Hér ræða þau mikilvægi þver-
faglegrar nálgunar, teymisvinnu og aðra mikilvæga þætti við mat og fram-
kvæmd starfsendurhæfingar á vegum VIRK.
Þórunn: Með þverfaglegri vinnu getum
við í sameiningu fundið besta úrræðið
fyrir einstaklinginn og klæðskerasniðið
það eftir veikleikum hans og styrkleikum.
Þverfagleg nálgun gefur meiri dýpt og
vinnan í kringum einstaklinginn verður
betri. Það getur orðið dýrkeypt að missa
af einhverjum möguleika í endurhæfingu
einstaklings; taka til dæmis ákvarðanir
sem bera síðan ekki árangur því mönnum
hefur yfirsést mikilvægur þáttur í ferlinu á
Endurkoma til vinnu er
oft besta meðferðin
Pallborðsumræður um þverfaglegt mat
Þátttakendur í umræðunni eru
sammála um mikilvægi þess
að málefni hvers einstaklings
séu tekin fyrir af þverfaglegu
teymi, enda sé það nauðsyn-
legt til að öðlast heildstæða
sýn og þekkingu sem nýtist í
matsferlinu.