Fréttir - Eyjafréttir - júl. 2019, Blaðsíða 19
19
Árið 1931 fékk Jónína Jónsdóttir í
Steinholti heildsöluleyfi í Vestmanna-
eyjum. Síðar tók sonur hennar Karl Krist-
mannsson við rekstrinum og rak til dauðadags
19. janúar 1958. Fyrirtækið var síðan rekið
af fjölskyldunni með aðstoð góðra manna þar
til sonur Karls, Kristmann tók við í byrjun árs
1961, þá aðeins 16 ára gamall.
Í tilefni af 100 ára kaupstaða-
afmælis Vestmannaeyjakaup-
staðar, hef ég verið beðinn um
að skrá hugleiðingar mínar um
sögu verslunar hér s.l. ár.
Þar sem ég er fæddur 1945 og
hef áður skráð brot af verslunar-
sögu Vestmannaeyja, sem birt-
ist í jólablöðum Fylkis 2006 til
og með 2009, hef ég ekki mörgu
við fyrri skrif mín að bæta.
Í bók Sigfúsar M. Johnsen Saga Vestmannaeyja, 2.
bindi sem út kom 1946, er mjög greinargóður kafli
um verslun og viðskipti (bls. 145).
Þar er greint frá verslun fyrri alda þegar Englend-
ingar, Norðmenn, Þjóðverjar og síðast en ekki síst
einokunarverslun Dana, var í höndum þessara
þjóða, fram til loka 18. aldar.
Eftir þetta tímabil uppúr 1800, fer verslun að
færast til okkar landsmanna og byggist það helst á
skipaferðum til og frá landinu. Mikill kippur kemur
í verslun hér í Eyjum uppúr 1900, þegar vélbátaút-
gerð hefst og íbúar hér eru þá um 500 manns. Það
verður þvílík íbúaaukning með vélbátaútgerðinni
og kaupstaðarréttindum okkar árið 1919. Árið 1925
eru skráðir hér 3.184, fjölgun uppá rúmlega 2.600
manns frá aldamótum. Árið 1950 eru íbúar hér 3.725
og 1960 erum við orðin 4.675. Það er fjölgun frá alda-
mótum á c.a. 60 árum um tæplega 4.200 manns.
Á þessum uppgangsárum fara Eyjamenn að taka
verslun og viðskipti í sínar hendur.
Í bók Sigfúsar M. Johnsen er kafli um innlenda
verslun (Saga Vestmannaeyja, útg. 1946, 2. bindi,
bls. 226), þar sem rakin eru og skráð verslunarleyfi
og m.a. 5 útgefin heildsöluleyfi.
Eitt af þessum leyfum er skráð á Inga Kristmanns,
sem var föðurbróðir minn. Haraldur Guðnason
fyrrverandi bókavörður hér í bæ, grúskaði í þessu
fyrir mig og sagði mér að föðuramma mín, Jónína
Jónsdóttir í Steinholti, hafi verið með kostgangara
í fæði og fékk hún heildsöluleyfi sem skráð er 1931.
Síðar þegar afi og amma flytja frá Vestmannaeyjum,
yfirtaka þeir bræður Ingi og pabbi minn, Karl Krist-
manns, þetta heildsöluleyfi sem er í okkar höndum
enn þann dag í dag: Karl Kristmanns Umboðs- &
heildverslun ehf.
Samkvæmt upprifjun minni, þar sem ég fer yfir
götur bæjarins og tel upp verslanir og það fólk sem
mér er minnisstætt frá þessum tíma, fullyrði ég að
fáar ef nokkrar starfsgreinar hafi tekið eins miklum
breytingum við jarðeldana á Heimaey 1973, eins og
verslun og viðskipti.
Margir komu ekki aftur eða skiptu um starfsvett-
vang. Íbúafjöldi hér fór úr 5.179 þann 1. des. 1972 í
4.369 þann 1. des. 1974.
Þetta var stór ástæða fyrir því að sú fjölbreytta og
öfluga verslunarflóra sem hér var fyrir gos, gat ekki
gengið eftir gos.
Síðar hafa orðið þær breytingar hér sem annars-
staðar, að félög og stórar verslunarkeðjur hafa
opnað verslanir sínar t.d. Krónan, Húsasmiðjan,
Bónus, Eymundsson, Skeljungur, Olís, N1, Flugfélag
Íslands, Eimskip, Samskip, Sjóvá, VÍS og Apótekar-
inn. Það voru Eyjamenn sem áttu og eða ráku versl-
anir og þjónustu með umboð fyrir marga af þessum
aðilum hér í Eyjum fyrir gos.
Ég hef fulla trú á þeim fjölmörgu sem hafa haslað
sér völl í ýmsum greinum verslunar og viðskipta hér
í dag. Veitingahús af ýmsum gerðum, fjölbreyttar
verslanir og önnur þjónusta sem hefur alltaf verið
hér til staðar og verður, með auknum og stórbættum
samgöngum og glæsilegu nýju skipi. Við sem eldri
erum munum eina ferð með Herjólfi til Reykjavíkur
sem tók 10-12 tíma, það er mikil breyting miðað við
sjö ferðir á dag í Landeyjahöfn flesta daga ársins.
Með sól í hjarta og sinni, og ósk um bjarta framtíð
fyrir okkur öll og yndislega bæinn okkar.
saga verslunar Í
vestmannaeyjum
Kristmann Karlsson
1931
Kristmann
Karlsson
Starfsfólk Heildverslunar Karls Kristmanns í september
1990. Klara Bergsdóttir, Betsý Kristmannsdóttir,
Guðrún Kristmannsdóttir, Kristín Bergsdóttir, Elísa
Kristmannsdóttir, Ingimar Georgsson, Júlíus Ingason,
Ingólfur Arnarsson, Sigurður Ingason og Kristmann Karlsson.
(Mynd: Sigurgeir Jónasson)