Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Blaðsíða 53
muna frekar það sem jákvætt var og skemmtilegt. Sam-
vinna var góð um flest mál, nokkuð sérstakt að stundum
óskaði minnihluti eða meirihluti að gerast meðflutnings-
aðili að tillögu. En stundum var málflutningur “stormur í
vatnsglasi,“ ætlað til að vekja athygli og umfjöllun, finna
snöggan blett, frekar en að sterkar meiningar lægju að
baki. Samskipti um málefni bæjarins voru eðlilega mest
við formann bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar, en einn-
ig við forystu minnihluta og þar minnist ég sérstaklega
Sigurðar Einarssonar heitins sem átti mína virðingu.
Eftirminnilegasta samstarfsfólkið og af hverju? Bæjar-
félagið hafði í þjónustu sinni afar gott og traust starfslið
sem margt átti þar langan starfsaldur að baki. Samskipti
mín voru eðlilega mest og dagleg við starfsfólk Ráðhúss-
ins og þar minnist ég sérstaklega Áka Heinz, með sína
djúpu rödd, sem flest vissi. Það er ósanngjarnt að telja til
einstaka starfsmenn í þessu sambandi enda samskiptin
mismikil en öll góð.
Eins og áður segir voru tíðust samskipti við formann
bæjarráðs, Guðmund Þ. B. Ólafsson og forseta bæjar-
stjórnar Ragnar Óskarsson. Við þá og fjölskyldur þeirra
tókst einstök vinátta sem ennþá varir og er nú okkar
tenging við Vestmannaeyjar, sem er okkur kær.
Af öðrum starfsfólki ber aftur að nefna Eirík Bogason,
góðan vin, sem ég tel hafa verið afar farsælan veitustjóra,
sem stöðugt horfði til hagsmuna veitnanna allra þriggja
sem undir hann heyrðu, en þær voru rekstrarlega og fjár-
hagslega sameinaðar undir heiti Bæjarveitna Vestmanna-
eyja á þessum árum undir hans stjórn.
Með Elíasi Baldvinssyni yfirmanni Áhaldahúsins og
slökkviliðsstjóra var einstaklega gott og skemmtilegt að
vinna, vikulegir verkfundir ósviknar skemmtistundir
með gríni og gamansögum. Mér þótti vænt um Sigga Vídó
hafnarstjóra og í hans garð varð til sérstakur vinarhugur.
Samantekt þessi hefur gefið mér tilefni til að upp-
lifa liðna tíð í Vestmannaeyjum, og fyrir það tilefni er
ég þakklátur, tímabil í okkar ævi sem við munum ætíð
minnast með hlýhug og þakklæti.
53
Arnaldur bæjarstjóri ásamt Ragnari Óskarssyni
forseta bæjarstjórnar. (Mynd: Sigurgeir Jónasson)
Úteyjalíf hefur verið
ríkur þáttur í lífi
Eyjamanna um aldir.
(Myndir: Sigurgeir
Jónasson)
1987
Kyndistöðin sem byggð var í tengslum við hraunhita-
veitu, fjarhitun við Löngulág tekin í notkun. • Ljósum
komið fyrir í öllum bryggjuþilum Vestmannaeyja-
hafnar við hlið bryggjustiganna.
1988
Sigurjón Óskarsson
skipstjóri á Þórunni
Sveinsdóttur VE
401 hefur oftast
orðið aflakóngur Vest-
mannaeyja, samtals
í 11 skipti. (Myndir:
Sigurgeir Jónasson)
• Rafveitan, Fjarhitun
og Vatnsveitan sam-
einuð í eitt fyrirtæki,
Bæjarveitur Vest-
mannaeyja. Þannig
var fyrirtækið rekið
til 2002 er það sam-
einaðist Hitaveitu
Suðurnesja hf.
1989