Fréttir - Eyjafréttir - jul 2019, Qupperneq 75
75
Íslandspóstur gaf út frímerki 7. febrúar í tilefni af 100 ára
afmæli Vestmannaeyjabæjar.(Hönnuður: Hlynur Ólafsson)
• Íbúar í Vestmannaeyjum um 4300.
Þann 17. febrúar var haldið málþing undir yfirskriftinni:
Nútíð, fortíð og framtíð Vestmannaeyja, tækifæri og
ógnanir. Málþingið var einn af þeim dagskrárliðum sem
skipulagður var í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyja-
kaupstaðar.
margir myndu vilja búa í Vestmannaeyjum í fram-
tíðinni og réttu 70% nemenda upp hendina. Þetta
er hátt hlutfall og staðfestir að ungu fólki finnst
greinilega gott að vera í Vestmannaeyjum. En stað-
reyndin undanfarna áratugi hefur verið að það er
töluvert lægra hlutfall af ungu fólki sem skilar sér
heim eftir að það fer í burtu til frekari náms eða
starfa. Lausleg talning á mínum árgangi (1986) til
viðmiðunar sýnir að þar hafa um 30-35% skilað sér
heim og aðeins um 5% af karlmönnunum, þetta er
því miður ekki einsdæmi.
En undirritaður ætlar nú samt að fullyrða að miklu
fleiri vilja búa í Vestmannaeyjum en nú gera. Eftir
flutning heim aftur seinni hluta síðasta árs hefur
rignt yfir okkur hjónin fyrirspurnum frá brott-
fluttum Vestmannaeyingum um hvernig þetta sé
hægt og hvernig gangi, spurningum um fasteigna-
markað, atvinnumál og samgöngur. Fólk bíður á
hliðarlínunni.
Hvað þurfum við að gera?
Í fyrsta sinn í u.þ.b. áratug stefnir í byltingu á sam-
göngumálum okkar Eyjamanna, nýr Herjólfur er á
leiðinni og einnig stefnir í 50% ríkisniðurgreiðslur
á flugi. Ég ætla þess vegna að gerast svo brattur að
segja að við erum á leið inn í algjörlega nýjan tæki-
færisglugga studdan betri samgöngum og tækni-
studdri fjórðu iðnbyltingu. En það erum við sem
tryggjum okkar eigin framtíð og helstu skrefin verða
að vera þessi:
1. Markaðssetjum okkur. Tölum vel um styrkleika
okkar út á við, löðum að tækifæri, hæfileika, menn-
ingu og fjármagn. Fólk og fjármunir sækja í menn-
ingarafkima þar sem „heimamenn“ láta vel að.
2. Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu á grund-
vallar atvinnugreinum Eyjunnar, Sjávarútveg-
inum og í vaxandi mæli ferðaþjónustunni. Þetta
þýðir tæknivæðing, sókn í nýja markaði og bætt
menning í kringum þessa atvinnugeira.
3. Tryggjum að nýr angi geti skotið rótum í hagkerfi
Eyjamanna. Þetta gerum við með samstarfi bæj-
aryfirvalda, núverandi atvinnulífs og mannauðn-
um með því að bjóða stuðning, aðstöðu, fjármagn
og menningu fyrir fólk til að prufa nýja hluti hér.
Það er fátt því til fyrirstöðu að næsta Marel eða
jafnvel CCP verði til í Vestmannaeyjum. Styðjum
líka unga fólkið okkar í því hugarfari að mennta
sig til stórra hugmynda sem það setur á laggirnar
hér heima, tryggjum að það sjái raunhæfa leið til
þess strax í Framhaldsskólanum.
4. Vestmannaeyjar sem barnaparadís. Ég hef séð
það aftur og aftur í störfum mínum sem formað-
ur Hugverkaráðs að okkar besta fólk sem hefur
farið utan til náms og starfa í bestu skólum og
fyrirtækjum veraldar snúa aftur til Íslands þegar
það hefur eignast börn, því fátt toppar Ísland
þegar kemur að því að ala upp börn, ja fátt nema
Vestmannaeyjar! En þetta þarf að markaðssetja,
aldrei gleyma punkti númer eitt. Fólk hlustar á
okkur meira en við gerum okkur grein fyrir þegar
við ræðum Eyjuna okkar og samfélag.
Ég veit að framtíð Vestmannaeyinga er björt, bjart-
ari en flestra, en þó aðeins ef við tryggjum hana.
Spaðafimma kæru samlandar.
Tryggvi Hjaltason