Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Síða 70

Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Síða 70
70 Íris er fædd í janúar árið 1972 og er frumburður foreldra sinna, þeirra Svanhildar Gísladóttur og Róberts Sigur- mundssonar og er hún því elst af fimm systkinum. Hún minnist æskunnar af mikilli hlýju og gleði. „Ég man fyrst eftir mér á Vestmannabrautinni, en þangað fluttum við eftir gos. Lífið var mjög fjörugt. Við syst- urnar erum fæddar með stuttu millibili og svo koma bræður okkar til sögunnar aðeins seinna. Við systur viljum meina að við höfum ekki alveg fengið sama upp- eldi og bræður okkar; við fengum agann en þeir dekrið. En við vorum mjög heppin, okkar var kennt mikið og mér var alltaf sagt að ég gæti gert allt. Pabbi var töluvert varkárari en mamma og var hræddari við að leyfa okk- ur hlutina en það var mamma sem gaf leyfið. Ég hefði til dæmis ekki lært að spranga ef pabbi hefði fengið að ráða,“ sagði Íris glottandi þegar hún minnist góðra tíma úr æsku. víðtæk reynsla Íris hefur nánast alla tíð búið í Vestmannaeyjum og er gift Eysteini Gunnarssyni og eiga þau tvö börn, Róbert Aron og Júníu. Íris fór sem au-pair til Bandaríkjanna áður en hún fór í framhaldsskóla. „Það var mjög ævintýralegt ár og mikil og góð reynsla sem ég öðlaðist þar.“ Eftir það ár lá leiðin í Menntaskólann við Hamrahlíð og ætlaði Íris sér að klára stúdentinn þar. Hún kláraði reyndar aðeins ár í MH, því hún kynntist eiginmanni sínum Eysteini á Þjóðhátíð og ákvað í kjölfarið að koma heim og klára stúdentinn við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum sem hún gerði. Íris er kennaramenntuð og stundaði það nám í fjar- námi frá KÍ ásamt góðum hópi kvenna. „Þetta er árið 2000 og ég byrja að kenna um leið og gerði það sam- hliða náminu. Hélt svo áfram að námi loknu og var kennari við Grunnskólann í tæp 15 ár.“ Síðustu ár hefur Íris leitað á önnur mið og sagði starfi sínu lausu sem fjármálastjóri Leo fresh fish þegar hún tók við sem bæjarstjóri. Íris hefur einnig setið í stjórnum fyrirtækja ásamt því að starfa fyrir ÍBV Íþróttafélag í fimm ár, fyrst sem varaformaður og síðar formaður félagsins. „Ég hef framtÍðin felst fyrst og fremst Í fólkinu sem HÉr býr Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum SArA SJöFn GrEttISDÓttIr sarasjofn@eyjafrettir.is Fyrstu kosningar til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum voru haldnar árið 1919. Níutíu og níu árum seinna var kona í fyrsta skiptið bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Íris Róbertsdóttir tók við sem bæjarstjóri í júní 2018 og á þessu rúma ári hefur ýmislegt gengið á og verkefnin mörg. Íris horfir björtum augum til framtíðar og segir að bæjarfélagið okkar sé alltaf að verða fjölbreyttara og líflegra. 2018

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.