Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - júl. 2019, Qupperneq 21

Fréttir - Eyjafréttir - júl. 2019, Qupperneq 21
21 Sendum Vestmannaeyjabæ innilegar hamingjuóskir á 100 ára kaupstaðarafmæli Samkomuhús Vestmanna- eyja var vígt 22. janúar 1938, þá stærsta kvik- myndahús landsins utan Reykjavíkur. (Mynd: Jóhann Stígur Þorsteinsson) • Skátafélagið Faxi stofnað 22. febrúar • Golfklúbbur Vestmannaeyja stofnaður 4. desember. 1939 1940 1941 19421938 Þrídrangaviti tekinn í notkun. • Hraðfrystistöð Vestmannaeyja stofnuð. • Lúðrasveit Vestmanna- eyja stofnuð 22. mars. • Fyrsti barnadagur Vestmannaeyja haldinn hátíðlegur 10. júní. Síðar var hann færður yfir á sumardaginn fyrsta. • Verkalýðsfélag Vest- mannaeyja stofnað 9. desember. Braggarnir í Stórhöfða. (Mynd: Gísli Friðrik Johnsen) • Breska her- námsliðið kom í lok maí 1940 til Vestmannaeyja. Herlið Breta og síðar Bandaríkjamanna hafði aðstöðu og viðbúnað víðar á Eyjunni. Vestmannaeyjahöfn var mikil útflutningshöfn á ísuðum fiski til Bretlands á tímum seinni heims styrjaldarinnar. Myndin sýnir meðal annars færeyskar skútur í höfninni. • Íbúar í Eyjum um 3500. Skaftfellingur og önnur skip sigldu með ísaðan fisk til Bretlands í seinni heims- styrjöldinni 1939 - 1945. Ljósmynd: Gísli Friðrik Johnsen bergur ve 44 bylgja ve 75 metnaðarkenndum annarra „innfæddra“ hér í bæ.“ Þannig kemst Þorsteinn Þ. Víglundsson að orði í Bliki árið 1971. Þó tæp 50 ár séu liðin síðan þetta var skrifað eiga þessi orð fullan rétt á sér. Átti hug hans allan „Oddgeir Kristjánsson var Vestmannaeyingur af hug og sál og helgaði þessu bæjarfélagi alla starfskrafta sína, ól hér allan sinn aldur að undanskildum þeim árum er hann dvaldist við hljómlistarnám í Reykjavík en hljóm- listin átti hug hans allan eins og við þekkjum,“ sagði séra Þorsteinn Lúther þegar Oddgeir var jarðsunginn. Þegar Oddgeir kom frá námi stofnaði hann Lúðrasveit Vestmannaeyja og var stjórnandi hennar til dauðadags. „Það starf hefur jafnan verið sjálfboðaliða- og hugsjóna- starf hans. Í því starfi felst meira en rétt að koma fram við öll hátíðleg tækifæri hér í bænum og halda hljóm- leika í Samkomuhúsinu og kirkjunni einu sinni á ári. Í þetta starf hefur eyðst mikill tími til raddsetningar laga. Enn meiri tími hefur þó farið eða eyðst til þess að kenna hverjum nýjum byrjanda. Ofan á allt þetta starf bættust lúðrasveitir skólanna en þær þurfti að æfa og þeim varð einnig að kenna,“ sagði Þorsteinn Lúther einnig. Harmdauði Í minningargrein Ása í Bæ segir að útförin hafi verið bæði fjölmenn og blómahafið mikið og hann spyr: „Hver var hann, maðurinn Oddgeir Kristjánsson, sem var slíkur harmdauði samborgurum sínum, að þeir fylgdu honum til hinstu hvílu með dýpri lotningu en flestum mönnum öðrum? Ási ver síðan grein sinni í að svara þessari spurn- ingu. Trúlega hefur Ása ekki rennt grun í að tæpum fimm áratugum seinna væru Vestmannaeyingar enn sama sinnis. Og ef eitthvað nafn lifir í Vestmannaeyjum enn þann dag í dag, er það nafn Oddgeirs og þar fylgir Ási fast á eftir. Þeir áttu mestan þátt í að skapa það sem við í dag- legu tali köllum Eyjalögin einu sönnu. Án þeirra og félaga þeirra væru Vestmannaeyjar fátækari í dag. Eiginkona Oddgeirs var Svava Guðjónsdóttir, mikil öðlingskona, sem studdi mann sinn í hvívetna. Þau eignuðust þrjú börn, Hrefnu Guðbjörgu, Hildi Kristjönu og Kristján sem lést aðeins tæplega níu ára gamall. Enn- fremur ólust upp á heimili þeirra þrjú dótturbörn þeirra. Samantekt: Ómar Garðarsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.