Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Side 23

Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Side 23
23 við Kjartan bróðir minn erindi í Krónni með myndum og fróðleik um Bakkastíginn. Þá var Gísli bróðir okkar orðinn mjög veikur og var ekki með. Hann tapaði sinni skák við dauðann eins og allir, en sú skák var tvísýn um tíma. guð blessi minningu hans Við skildum eftir tölvudisk á Bókasafninu með gögn- unum sem við höfðum safnað saman. Það var að sönnu gefandi og lærdómsríkt að safna þessum gögnum. Í þeim má sjá að byggð hefur lengi staðið á því svæði sem síðar varð Bakkastígur. Í ágætri samantekt Jóns heitins Gunnlaugsonar frá Gjábakka, segir hann að í húsaskrá frá árinu 1507 megi finna Gjábakka, sem gatan er væntanlega heitin eftir. bakkastígur Um aldamótin 1700 voru tveir ábúendur á Gjábakka- jörðinni í tveim húsum, syðri og nyrðri Gjábakka. Um tíma bjuggu þarna Oddur Svarthöfðason og Hákon Jónsson og er líklegt að sá nyrðri hafi verið byggður fyrr, því hann var talinn embættishús. Smám saman fjölgar húsum og þar sem var göngu- stígur verður síðar gata, fyrst fyrir hesta og handvagna og síðar vélknúin farartæki. Smátt og smátt verður til lítið samfélag við þessa götu eins og við götur annarsstaðar. Öllum finnst sín gata sérstök og fólk á oftast góðar minningar úr götunni sinni og hverfinu. Það sem er svo hjartnæmt við þetta litla samfélag er hvernig allir tóku ábyrgð á börnunum. Fólkið í götunni passaði ekki bara upp á sín eigin börn heldur börn ná- grannanna líka. Fólk hjálpaðist að í mótlæti og gladd- ist saman, þegar ástæða gafst. Mér er minnisstætt hvernig sorgina áttu allir saman, þegar óhapp varð, eða sjóslys. Sorgin verður léttbærari, með hluttekningu vina og nágranna. Þegar fólk úr götunni hittist er því fagnað eins og þjóð- höfðingjum þó áratugir séu frá síðustu endurfundum. „Hver vegur að heiman er vegurinn heim,“ sagði Magnús Eiríksson. Við fórum af Bakkastígnum fyrir löngu en í dag liggur vegurinn heim. Vinir okkar og nágrannar af Bakkastíg eru okkur kærir enn í dag, þó margir séu nú sofnaðir af þessum heimi. Stundun sitjum við Kjartan bróðir minn og göngum í huganum milli húsanna við Bakkastíginn og heilsum upp á heimilisfólkið, lífs og liðið. Stundum hlægjum við og stundum þarf að þurrka tár með skyrtuerminni. Allra minnumst við með hlýju. Engir tveir einstak- lingar eru alveg eins, en Guð býr í hverjum manni og ekki síst í þeim sem skera sig úr. bragi í Höfn var öðruvísi Í götunni var hann vinur allra og alls staðar velkominn og var tíður gestur á mörgum heimilum. Hann stoppaði sjaldnast lengi, fékk sér kleinu eða klatta og borgaði fyrir sig með snjöllum setningum, sem vöktu gleði og kátínu. Sum tilsvörin urðu víðfræg. Líklega hefur Bragi með ljúfmennsku sinni kennt heilli götu og bæjarfélagi það fyrir lífstíð, að þeir sem ekki eru steyptir í sama mót og við hin, hafa margt fram að færa og ef þeir eru hafðir með í samfélagi götunnar og hverfisins, stafar frá þeim bæði birtu og gleði. Guð blessi minningu hans. Þegar maður á endanum skríður upp á ströndina í ei- lífðinni eftir að hafa synt úr þessari veröld yfir í næstu, þykir mér líklegt að maður sjái klappir, Skansinn, Urðavitann og brattan fallegan klett og líklega verður austanbræla. Sú tilhugsun hlýjar manni um hjartaræturnar. Maður verður kominn heim. Horft austur Bakkastíg. Fremst á myndinni til vinstri er húsið Höfn. Húsið til hægri er Vestri-Gjábakki þar sem Atli ólst upp. Bakkastígur varð hrauninu að bráð í lok mars 1973.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.