Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jul 2019, Blaðsíða 31

Fréttir - Eyjafréttir - jul 2019, Blaðsíða 31
31 horfið. Mér fannst bærinn vera að niðurlotum kominn. Gluggarúður voru mattar, sandblásinn bær með slitnar götur og löskuð hús. Við pabbi fórum í gönguferð um nýja hraunið á sólríkum degi. Mér fannst það sem ég sá ógnvekjandi og óþægilegt. Þetta væri svo sem tilkomumikið ef það væri einhvers staðar annars staðar. Ekki hér á Eyjunni minni. Og heimsóknir til Eyja eftir þetta festu þessa neikvæðu upplifun í sessi. Ég dvaldi erlendis nokkur ár, stofnaði fjölskyldu og þegar heim kom hóf ég störf í Reykjavík. Ég kom auðvitað til Eyja nokkrum sinnum að hitta fólkið mitt, en mér fannst ég ekki vera heima. Svo var það sumarið 1990 að ég kom þrisvar til Eyja með stuttu millibili. Fyrst á árgangsmót sem var aldeilis yndislegt. Að hitta þau sem ég hafði umgengist mikið í æsku og sum hver ekki séð í áratugi. Ekki síður að eiga skemmtileg samtöl við hina jafnaldrana sem ég hafði svo sem ekki þekkt mikið hér áður. Það var svo gaman að sjá allt þetta fólk, rifja upp gamlar minn- ingar, eignast „nýjar“ gamlar. Ég fór frá Eyjum með bros á vör. Síðan kom ég nokkrum vikum síðar í bráð- skemmtilegt stórafmæli pabba og sá með eigin augum að lífið í Eyjum heldur áfram gegnum afkomendurna. Og þetta varð til að þess að við hjónin skelltum okkur á þjóðhátíð. Tókum þátt í undirbúningnum með systk- inum mínum og undum glöð í hústjöldunum við söng og góðar veitingar. Það tók mig sem sé 17 ár að sættast við gosið. Og það gerðist með aðstoð þeirra sem aldrei misstu trúna á Eyj- unni sinni: fjölskyldunni minni sem hélt áfram að vera Eyjafólk, Kiddýu og öllu hinu heimafólkinu í árgangi 1950 sem hefur staðið fyrir 8 árgangsmótum sem tengja okkur, Gauju heitinni sem sneri vörn í sókn og hóf að rækta upp dálítinn skika í auðninni. Hún leit ekki á nýja hraunið sem æxli, heldur sem opið sár sem þyrfti að græða. Loks nefni ég Goslokahátíðina sem hefur öðrum þræði orðið hátíð brottfluttra. Allt þetta er hefur reynst mér Eyjahjartastyrkjandi. Einar Gylfi og bekkjafélagar í 6. bekk Barnaskóla Vestmannaeyja. Runólfur Gíslason á Hvanneyri og bræðurnir Sveinn og Rúnar Pálmasynir, Heiðarvegi 42, fyrir framan bíóútstillingar í verslun A. Gunnlaugsson á horni Bárustígs og Miðstrætis. 19531952 Þorbjörn Guð- jónsson bóndi á Kirkjubæ með hestvagninn dreifir mjólk í hús við Bárustíg. • Nýtt pípuorgel vígt í Landa- kirkju 15. ágúst. Gúmmíbjörgunarbátur kom fyrst við sögu hér við land við björgun áhafnar mb. Veigu VE. (Mynd: Friðrik Jesson) • Félag Bjargveiði- manna stofnað, Árni Árnason símritari formaður. • 19. október var Gagnfræðaskólinn settur í fyrsta sinn í nýju húsnæði, sem hýsir nú Framhaldsskólann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.