Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - júl. 2019, Blaðsíða 43

Fréttir - Eyjafréttir - júl. 2019, Blaðsíða 43
43 Hálfur vörubílsfarmur af bréfsefnum Alls hafa fimmtán manns gegnt embætti bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, frá 1919 til 2015, samkvæmt töflu úr upplýsingasamantekt Áka og föður hans. Hann hefur starfað með níu þeirra og ber þeim vel söguna. „Þeir voru hver með sín sérkenni og mismunandi stjórn- unarstíl og ég kunni vel við þá alla. Líklega er Páll Zóphóníasson þó minnisstæðastur. Hann var ákaflega röggsamur og maður vissi vel af honum. Sigfinnur Sigurðsson staldraði hér stutt við en ég man að í hans bæjarstjóratíð var keypt bifreið af Cortinu-gerð til afnota fyrir bæjarskrifstofurnar. Einn daginn var ég sendur niður á Eimskip til að sækja pappírssendingu sem hann hafði pantað, bréfsefni og umslög fyrir Vest- mannaeyjabæ. En þegar ég mætti á staðinn kom í ljós að Cortínan dugði ekki til að rúma þá sendingu. Þarna var um að ræða hálfan bílfarm og varð að panta vörubíl til að koma henni á áfangastað. Það var mikill burður, man ég, að koma því öllu upp á þriðju hæð í Útvegs- bankanum þar sem bæjarskrifstofurnar voru þá. Þetta voru feiknarlega vönduð bréfsefni og umslög, með upp- hleyptu letri, prentað í Englandi og þetta dugði árum saman.“ Áki hefur lengst af ævinni verið einhleypur. „Skömmu eftir gos kynntist ég stúlku frá Selfossi, Kristínu Gísla- dóttur, og við giftum okkur 1975. Það hjónaband varð ekki langlíft, við skildum árið 1982 en eigum saman dótturina Sigríði sem býr í Reykjavík með fjölskyldu sinni. Og barnabörnin eru orðin fjögur, þannig að ætt- boginn helst gangandi hjá mér eins og Torfa bróður,“ segir Áki og brosir breitt. aðaláhugamálið enn til staðar Aldursins vegna hefði Áki Heinz mátt halda áfram störfum í rúmt ár til viðbótar. En hann ákvað sjálfur að hætta um síðustu mánaðamót. „Ég átti við slæm veikindi að stríða árið 2012 en komst nokkuð klakklaust frá því. Í fyrra langaði mig hins vegar til að minnka við mig starfshlutfallið og ákvað að færa mig í 50% starf um síðustu áramót en með því er unnt að hefja töku líf- eyris. Svo í sumar taldi ég rétt að taka skrefið til fulls og fara að njóta þess að vera engum háður og geta alfarið tekið að sinna áhugamálunum. Sagði upp og hætti um mánaðamótin september - október. En mér var ljóst að menn hætta ekki bara allt í einu að vinna og sitja með hendur í skauti, það getur haft slæmar afleiðingar. Menn verða að hafa eitthvað fyrir stafni og ekki gleyma að hugsa um líkamlegt ástand. Einu sinni til tvisvar í viku fer ég í vatnsleikfimi í sundlauginni, er þar eini karlinn með fimmtán konum og fer vel á með okkur. Svo fer ég í þrek í sjúkraþjálfuninni uppi á spítala tvisv- ar í viku auk þess að ganga mikið. Þar með er líkamlegu hliðinni prýðilega sinnt.“ Aðaláhugamálið hans Áka, grúsk og upplýsingaöflun, hvarf ekki með starfslokum í Ráðhúsinu. Áki Heinz er enn á fullu við þá iðju, núna heima við fyrir framan tölvuna. Hann er mjög virkur inni á fésbókarsíðunni Heimakletti, þar sem er að finna urmul af gömlum myndum og upplýsingum um Vestmannaeyjar og mannlífið þar. Oft birtast þar myndir af fólki sem við- komandi vita ekki deili á. Þá er Áki Heinz oftar en ekki bjargvætturinn, í flestum tilfellum er hann kominn með nöfn og upplýsingar samdægurs. Sannarlega ómetanlegt að hafa slíkan viskubrunn á meðal vor. Og þó svo að Áki Heinz vinni ekki lengur hjá bænum sem slíkur, þá hefur hann ekki alveg slitið tengslin. „Við komum nokkur saman sem höfum áhuga á ljósmynd- um úr Eyjum og sækjum myndasýningar í Safnahús- inu á fimmtudögum. Þar hafa verið myndasýningar, og öllum er frjálst að koma á þær sýningar. Þar reynum við að bæta inn í það sem skortir á upplýsingar með myndunum og skapa þar með gleggri og skýrari mynd af liðinni tíð. Þetta er og hefur verið mitt aðaláhugamál hingað til og ég vona að mér gefist núna enn betra tæki- færi til að sinna því á komandi árum,“ sagði Áki Heinz Haraldsson að lokum. Kafli úr viðtali Sigurgeirs Jónssonar við Áka Heinz sem birtist í 42. tölublaði Eyjafrétta 2015. Starfsfélagar í Ráðhúsinu kvaddir. Myndin er tekin á síðasta starfsdegi Áka hjá bænum, 30. september 2015, afmælisdegi föður hans, Haraldar Guðnasonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.