Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jul 2019, Side 52

Fréttir - Eyjafréttir - jul 2019, Side 52
52 „Frá því að við fluttum frá Eyjum í júní 1990 höfum við hjónin búið í Kópavogi og liðið þar vel, bjuggum í vesturbæ Kópavogs í um 25 ár en nú í Smárahverfi gegnt Smáratorgi og Smáralind. Þaðan er örstutt í alla daglega þjónustu og þægileg búseta hvað það varðar. Þessi ár hef ég þó sótt vinnu í Reyjavík, fyrst við at- vinnuverkefni á vettvangi landbúnaðarins í Bændahöll en síðar hjá Reykjavíkurborg sem framkvæmdastjóri Húsnæðisnefndar borgarinnar og síðar sem fjármála- og rekstrarráðgjafi við grunnskóla borgarinnar í um 13 ár. Mínum föstu störfum lauk síðan fyrir 5 árum. Frúin hefur frá upphafi búsetu okkar hér starfað hjá Reykja- víkurborg, lengst af sem ritari á skrifstofu borgarstjórn- ar en síðar sem skrifstofustjóri. Hennar starfi lauk fyrir um 7 árum,“ sagði Arnaldur aðspurður um hagi og störf síðustu ára. erlendir þjóðhöfðingjar sóttu í að heimsækja eyjarnar Í þínu starfi hjá bænum, var eitthvað eftirminnilegra en annað? Þessi ár voru um margt eftirminnileg, verk- efnin óþrjótandi og margt mætti nefna. Að ýmsu var unnið sem eðlilega hafði tafist í uppbyggingu og fram- kvæmdum sem afleiðingu Heimaeyjarelda. Erlendir þjóðhöfðingjar sóttu í að heimsækja Eyjarnar, eða öllu heldur þótti þægilegt að hafa það í skipulagi heimsókn- ar að senda gestina til Eyja, dvölin stutt, en náttúran sérstök og fögur og gestrisnin rómuð. Þar reyndi á nýja lífsreynslu, að umgangast kóngafólk og það sem til- heyrði í siðum og venjum. Sjötíu ára afmælis bæjarfélagsins var minnst í júlí 1989 með veglegri og fjölbreyttri 9 daga dagskrá sem gekk einstaklega vel enda búið að semja við veðurguði um góða tíð þessa daga, stillur og heiðríkja alla dagana, en er dagskrá lauk við hátíðarslit á Stakkó féllu fyrstu droparnir. Framangreindur samningur greinilega upp- fylltur. Hundrað ára afmælisnefnd óska ég mildrar tíðar og glæsilegrar hátíðar. Hraunhitaveitan var að þrotum komin Hvað fannst þér takast best á tímabilinu? Í starfs- byrjun blasti við mér að hraunhitaveitan var að þrotum komin, virkjun nýrra svæða afar kostnaðarsöm og árangur til skamms tíma. Tvær aðrar veitur, Akureyri og Akranes-Borgarfjörður, voru einnig í erfiðleikum, en þeirra vandamál voru einkum skuldir vegna fram- kvæmda. Ég hafði þegar samband við viðkomandi bæjarstjóra og til varð samvinna um að leita lausna hjá ríkisvaldi og viðkomandi ríkisstofnunum og beita pólitískum þrýstingi. Tíð fundarhöld leiddu til lausna, tæknilegra og fjár- hagslega, sem ég hygg að Vestmannaeyingar hafi notið lengi. Góð eining var um málið í bæjarstjórn en við nut- um einkum þekkingar og trausts sem Eiríkur Bogason veitustjóri okkar bar við lok málsins. Of langt mál yrði að telja fram allt það sem varð til framfara á kjörtímabilinu, en nefna má framkvæmdir á hafnarsvæðinu, gatnaframkvæmdir, fjölgun íbúða aldraðra, framkvæmdir við framhaldsskólann og svo almenn tiltekt og umhverfi. Undir lokin var hafin um- ræða að undirbúningi byggingu íþróttahúss. samvinna var góð um flest mál Hvað var mest rædda málið manna á milli í þinni bæjarstjórnartíð? Ég minnist ekki stórfellds ágrein- ings um einstök mál. Ef til vill leiðir það af því að Arnaldur Bjarnason var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum eitt kjörtímabil eða frá árinu 1986 til ársins 1990, en það ár flutti hann frá Vestmannaeyjum. 1986 tÍmabil sem við munum ætÍð minnast með HlýHug og þakklæti Arnaldur Bjarnason, bæjarstjóri 1986-1990 SArA SJöFn GrEttISDÓttIr sarasjofn@eyjafrettir.is Arnaldur Bjarnason, bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum 1986-1990. (Mynd: Sigurgeir Jónasson)

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.