Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - Jul 2019, Blaðsíða 60

Fréttir - Eyjafréttir - Jul 2019, Blaðsíða 60
60 Það urðu miklar vendingar í bæjarpólitíkinni og meiri- hlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks brast, á tímabilinu sem Ingi var bæjarstjóri og sagði Ingi að undanfari þeirrar ákvörðunar hefði verið for- vitnilegur og sýndi hvaða hliðar pólitíkin getur tekið á sig. „Annars var eftirminnilegast á tímabilinu að kynn- ast starfsfólki sveitarfélagsins og það góða samstarf sem ég átti með öllu því fólki á mínum stutta tíma í starfi. Rekstur bæjarsjóðs var erfiður á þessum tíma og vinnan einkenndist eðlilega af þeirri stöðu. Hins vegar er mér alltaf mjög minnisstæð umræða á einum bæjar- stjórnarfundi þegar lá fyrir tillaga á fundinum um það að sveitarfélagið kæmi að vali á Þjóðhátíðarlagi með til- heyrandi kostnaði. Sú umræða tók að mig minnir um 40 mínútur. Næsta mál á dagskrá var samningur við ríkið um byggingu menningarhúss hér í Eyjum. Um var að ræða mjög stóran samning þar sem bæjarsjóður þurfti að leggja fram háar fjárhæðir á móti ríkinu. Af- greiðsla á því máli tók hins vegar mjög skamman tíma, eða örfáar mínútur,“ sagði Ingi. Há framlög frá ríkinu Aðspurður um hvað best tókst á tímabilinu sagði hann að það hefði verið fyrst og fremst vinnan við fjárhags- áætlun sem var á herðum starfsfólks sveitarfélagsins. „Sú vinna var unnin við erfiða fjárhagsstöðu bæjarsjóðs. Einnig var mikilvægt að hafa náð að tryggja fjármagn frá ríkinu í byggingu Menningarhúss hér í Eyjum, sem var annað tveggja sveitarfélaga sem fékk framlag frá ríkinu á árinu 2003. Samhliða því fékkst framlag frá ríkinu í safnaflóru Eyjanna. Alls voru þetta framlög á þeim tíma upp á 280 m.kr,“ sagði Ingi og bætti einnig við að undirbúningur fyrir goslokahátíðina árið 2003, í tengslum við að 30 ár voru liðin frá lokum Heima- eyjargossins, hafi gengið mjög vel og að hátíðin sjálf hafi verið glæsileg í alla staði. Halda rekstri bæjarsjóðs réttu megin við strikið Mest rædda málið manna á milli þegar Ingi sat í bæjar- stjórnarstólnum var aðallega erfið staða bæjarsjóðs. „Að ná að halda bæjarkerfinu í réttu horfi, það er að sinna nauðsynlegum rekstri við bæjarbúa, brýnum fram- kvæmdum og halda rekstri bæjarsjóðs réttu megin við strikið. Af einstökum málum var það helst samningur- inn við ríkið um byggingu Menningarhúss. Þó það hafi ekki orðið að því á þessum tíma þá var sá samningur hluti af verkefninu við byggingu Eldheima,“ sagði Ingi. Ingi Sigurðsson er fæddur 18. desember 1968 og er menntaður byggingatæknifræðingur. Ingi er giftur Fjólu Björk Jónsdóttur iðnrekstrarfræðingi og saman eiga þau þrjú börn, Jón fæddan 1995, Evu Lind fædda 2000 og Ingu Dan fædda 2005. „Ég var í starfi bæjarstjóra frá miðju ári 2002 og fram á mitt ár 2003. Ég starfaði svo hjá Íslandsbanka hér í Eyjum sem útibússtjóri frá árinu 2004 og til ársins 2015. Frá árinu 2015 hef ég svo starfað hjá Steina og Olla byggingaverktaka hér í Eyjum,“ sagði Ingi. 2002 tryggðu fjÁrmagn frÁ rÍkinu Í byggingu menningarHúss Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri 2002-2003 SArA SJöFn GrEttISDÓttIr sarasjofn@eyjafrettir.is Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum 2002-2003. (Mynd: Sigurgeir Jónasson)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.