Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - Jul 2019, Blaðsíða 65

Fréttir - Eyjafréttir - Jul 2019, Blaðsíða 65
65 reynslunni sem hann öðlaðist í bæjarstjórnartíð sinni á heimaslóðum í Vestmannaeyjum. tókst að verja sjóði sveitarfélagsins ,,Það hafði verið erfitt árferði í Eyjum síðustu 18 árin áður en ég tók við rekstri Vestmannaeyjabæjar. Stöðug fólksfækkun, þungur rekstur og erfiður fjárhagur. Brandarinn sem gekk á þessum árum að sá sem færi síðastur úr Eyjum þyrfti að slökkva ljósin var í raun ekki brandari. Spárnar um að við yrðum hugsanlega að sætta okkur við að fara niður í 3500 íbúa eða verða jafn- vel sumarhúsabyggð hefði allt eins getað ræst,“ segir Elliði sem tekur fram að á kjörtímabilinu 2002 til 2006 hafi margar erfiðar og þungar ákvarðanir verið teknar og reksturinn trimmaður niður. ,,Það skipti auðvitað máli að hér varð fjármálahrun árið 2008 og það er svolítið sérstakt að reka sveitarfélag í slíkum aðstæðum. Árið 2007 seljum við hlut Vest- mannaeyjabæjar í Hitaveitu Suðurnesja og sem betur fer tókst að verja alla sjóði sveitarfélagsins í hruninu. Fljótlega breyttust ytri skilyrði til batnaðar og það fór að ára vel í sjávarútvegi. Það er eðli sjávarplássa að fylgja upp- og niðursveiflum í sjávarútvegi. Mitt fyrsta verk sem bæjarstjóri var að taka lán svo hægt væri að greiða út laun,“ segir Elliði sem minnir að þetta hafi verið eina lánið sem hann skrifaði undir sem bæjarstjóri. ,,Þegar ég hætti skilaði Sjálfstæðisflokkurinn sveitar- félaginu í allt öðru formi en við tókum við. Ég tel að það sé erfiðara að stjórna sveitarfélagi í góðu árferði en slæmu. Þenslu-faktorinn er meiri þegar vel árar. Það er enginn sérstakur áhugi hjá kjósendum sem beðið hafa eftir betra árferði að bíða lengur eftir úrbótum,“ segir Elliði sem telur að þá verði stjórnendur sveitarfélaga að standa á báðum fótum á úttektarbremsunni. ,,Fjármagn vegna sölu á eignum og jákvæð ytri skilyrði eru einskipt. Þeim einstaklingum sem treyst er til þess að fara með opinbert fé er ekki heimilt að ráðstafa því sem pólitísku eyðslufé. Þegar vel árar þarf að hagræða í rekstri sveitarfélaga. Ég er stoltur af því að hafa greitt upp lán í minni bæjarstjórnartíð og skilað bænum nánast skuldlausum í stóru myndinni,“ segir Elliði sem tekur það fram að mikill einhugur hafi verið hjá öllum bæjarfulltrúum að fara skynsamlega með fé og sólunda því ekki í gæluverkefni. ekki eins manns verk að leiða sveitarfélag ,,Það er ekki eins manns verk að leiða sveitarfélag. Það er samvinnuverkefni meiri- og minnihluta. Ég er stoltur af því hversu gott samstarf og traust var á milli meiri- og minnihluta og embættismanna Vestmanna- eyjabæjar á þeim tíma sem ég sat í stóli bæjarstjóra. Ég er líka stoltur af þeirri viðhorfsbreytingu sem varð í Vestmannaeyjum. Við hættum að barma okkur, bárum höfuðið hátt, fengum rödd og það er kannski það sem stendur að lokum upp úr,“ segir Elliði sem telur upp nokkrar verklegar framkvæmdir sem að hans mati tókust vel. ,,Eldheimar tókust ævintýralega vel, fjölnota íþrótta- húsið, Skipalyftan, útivistarsvæði sundlaugarinnar, Fiskiðjan og mjaldraverkefnið með beluga hvölunum eru dæmi um vel heppnaðar framkvæmdir,“ segir Elliði og bætir við að samgöngumál hafi verið rauður og erf- iður þráður þau ár sem hann var í Ráðhúsinu. ,,Það reyndi oft verulega á, við réðum engu um þá ákvörðun að ráðist var í gerð Landeyjahafnar né hvernig hún var gerð. Hún lenti í fanginu á okkur og það var okkar að verja verkefnið. Það gerðum við og öxluðum ábyrgð á þessu samfélagslega mikilvæga verk- efni,“ segir Elliði sem fannst margir hlaupast full hratt undan merkum þegar á reyndi. Hann telur framtíð Vestmannaeyja felast í greiðari samgöngum en sigling til Þorlákshafnar bjóði upp á og er þakklátur þeirri sam- stöðu sem ríkti í bæjarstjórn frá upphafi. Elliði segist þess fullviss að ef hraðskreiðara og eitthvað örlítið stærra skip en núverandi Herjólfur hefði verið keypt eða smíðað, hefðu aldrei verið farnar fleiri en tvær til þrjár ferðir á dag í Þorlákshöfn. ,,Ég hef gert mörg mistök“ ,,Ég hef alla tíð gefið sjálfum mér fullt svigrúm til að gera mistök. Ég hef gert mörg mistök sem stafar oftast af því að ég er mikill keppnismaður. Mér hættir til að búa til átök þar sem þeirra er ekki þörf. Ég sé eftir átökum þar sem fólki hefur sviðið eða liðið illa af mínum völdum. Einnig átökum sem hefði verið hægt að komast hjá ef keppnisskapið hefði ekki hlaupið með mig í gönur en nú vinn ég að því að breyta þessu,“ segir Elliði sem hefði helst viljað fylgja yfirtöku Vestmannaeyjabæjar á Herjólfi úr hlaði. ,,Ég var svo heppinn að fá til liðs við mig hæfileikaríkt fólk í Herjólfsverkefnið sem gaf vinnu sína og tíma til þess að tryggja að Vestmanneyjabær tæki við rekstri Herjólfs. Mér fannst vont að skilja félaga mína eftir en það kemur maður í manns stað. Ég var einstaklega gæfusamur að í kringum mig valdist gott fólk bæði í embættismannakerfinu sem og pólitíkusar allra flokka,“ segir Elliði sem hlakkar til komandi verkefna og uppbyggingar í Ölfusi og að eiga fleiri samveru- stundir í sumar með eiginkonunni Bertu og börnunum Nökkva Dan og Bjarteyju Bríet. Friðrik Stefánsson tekur við blómum fyrir hönd Krafts í kringum Ísland, úr hendi Elliða bæja- stjóra á Goslokahátíð 2008. (Mynd: Sigurgeir Jónasson)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.