Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Qupperneq 66

Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Qupperneq 66
66 Hvenær og af hverju tókstu til starfa hjá Vest- mannaeyjabæ? Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2006 fylgdu nýjum meirihluta nýjar áherslur og nokkrar breytingar á yfirstjórn bæjarins. Auglýstar voru tvær framkvæmdastjórastöður hjá sveitar- félaginu og voru margir sem hvöttu mig til að sækja um. Á þeim tíma var ég að leysa af í eitt ár sem fjár- málastjóri hjá Vinnslustöðinni og ákvað að slá til. Framhaldið vita flestir og ég byrjaði á haustdögum 2006. Það var alltaf mjög gott að vinna í Ráðhús- inu og þar voru góðir andar á ferð, í orðsins fyllstu merkingu. Allt frá upphafi vildi ég láta gott af mér leiða í þágu bæjarins og mikilvægt að nýta tímann vel. Þegar mikið er að gera og maður hefur ástríðu fyrir starfinu sem maður sinnir þá er tíminn fljótur að líða. Fljótt urðu kjörtímabilin þrjú og tólf ár að baki. Því taldi ég breytingarnar eftir síðustu kosn- ingar góðan tímapunkt fyrir mig að skipta um starfsvettvang. ógleymanlegur fundur í jómfrúarferð Herjólfs til landeyjahafnar Í þínu starfi hjá bænum, var eitthvað eftirminni- legra en annað? Tvennt er mér sérstaklega eftir- minnilegt. Annað er salan á hlutabréfunum í HS veitum, þegar sveitarfélagið eignaðist rúmlega þrjá milljarða á einni nóttu, en hitt er atburðarrásin í kringum efnahagshrunið á haustdögum 2008. Því fylgdi mikil vinna við að sjá til þess að sveitarfélagið tapaði ekki sínum fjármunum sem voru í góðri ávöxtun hjá hinum ýmsu fjármálastofnunum. Við vorum svo lánssöm að komast í gegnum hrunið án nokkurra áfalla. Mikilvæg voru síðan kaupin á fasteignum bæjar- ins til baka af Fasteign fyrir tæpa tvo milljarða. Það var góð tilfinning þegar allar stofnanir sveitarfélags- ins voru komnar aftur í eigu þess. Einnig stendur upp úr ákvörðunin og framkvæmd- in við byggingu Eldheima. Safnið er einstaklega vel heppnað og með byggingu þess erum við búin að vernda minjar og skrásetja þessa sögu fyrir komandi kynslóðir. Ógleymanlegur var svo bæjar- stjórnarfundurinn sem haldinn var í jómfrúarferð Herjólfs til Landeyjahafnar í dásamlegu veðri. úr einu verst rekna sveitar- fÉlaginu Í Hóp þeirra bestu Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins í tólf ár SArA SJöFn GrEttISDÓttIr sarasjofn@eyjafrettir.is Rut Haraldsdóttir er fædd og uppalin í Eyjum. Allrar sinnar menntunar gat hún aflað frá Eyjum og var í hópi nemenda sem fyrstur setti upp stúdents- húfu frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum árið 1984. „Ég var líka í þeim hópi nema í við- skiptafræði sem fyrstur útskrifaðist frá Háskól- anum á Akureyri í fjarnámi árið 2005, en þá hafði ég verið í löngu hléi frá námi sem nýtt var í uppeldið, atvinnurekstur og önnur störf.“ Rut er gift Páli Þór Guðmundssyni og saman eiga þau tvo syni, Harald og Kristin, og Írisi tengdadóttur. „Ég er einnig svo lánssöm að eiga tvo fimm ára ömmustráka sem eru fjörugir og skemmtilegir,“ sagði Rut. 2006 2007 2008 Tvö ný fiskiskip í eigu Berg-Hugins hf. koma til Eyja. (Mynd: Óskar Pétur Friðriksson) • Grafskipið Vestmannaey tekið úr notkun eftir rúmlega 70 ára þjónustu við Vest- mannaeyjahöfn. • Leikskólinn Sóli tekinn í notkun. • Þrír Eyjamenn klifu Einidrang fyrstir manna, Haraldur Geir Hlöðversson, Baldvin Johnsen og Þór Engilbertsson. • Jarðgöng milli lands og Eyja afskrifuð af ráðherra. • Ákveðið að framtíðar sjósamgöngur við Eyjar verði með siglingum í Bakkafjöru. Nýja vatnsleiðslan tekin á land á nýjahrauninu. (Mynd: Sigurgeir Jónasson) Samþykkt að setja Surtsey á Heimsminjaskrá UNESCO. (Mynd: Sigurgeir Jónasson) 2009
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.