Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Síða 72

Fréttir - Eyjafréttir - jul. 2019, Síða 72
2018 Fiskiðjuhúsið fær nýtt hlutverk. Í mars 2019 flutti Náttúru- gripa- og sjávardýrasafn á jarðhæð hússins og hvalasundlaug tekin í notkun sunnan við húsið. (Mynd: Páll Marvin Jónsson) Eyjamaðurinn, tannlæknirinn og landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson. Ísland í fyrsta sinn á EM 2016 og HM 2018. (Mynd: GettyImages) 72 Elís Jónsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og fór yfir sögu samfélags og atvinnulífs Vestmannaeyja síðustu hundrað árin. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fór yfir sögu bæjarstjórn- arkosninga og bæjarstjórna Vestmannaeyja. Hildur Sólveg Sigurðardóttir bæjarfulltrúi fór yfir sögu og hlutverk Ráðhúss Vestmannaeyja frá byggingu þess til dagsins í dag. Hildur bar upp eftirfarandi há- tíðarsamþykkt bæjarstjórnar. Hátíðarsamþykkt „Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjakaupstaðar að halda áfram endurbótum á Ráðhúsi Vestmannaeyja við Stakka- gerðistún með það að markmiði að húsið hljóti þann virðingarsess sem því sæmir og að innan veggja þess rúmist m.a. viðhafnarsalur og hluti safna Vestmanna- eyjabæjar. Undirbúningur, áætlanagerð og nánari til- lögur um framtíðarhlutverk hússins verði kynnt bæj- arbúum haustið 2019. Áætlað er að endurbótunum ljúki á 3 árum. Húsið var byggt sem Sjúkrahús Vestmannaeyja og var tekið í notkun 1928. Húsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni þáverandi húsameistara ríkisins og var bygging þess mikið átak á sínum tíma. Húsið var gert að Ráðhúsi Vestmannaeyjabæjar 1977 að loknum miklum endurbótum, en þá hafði engin starfsemi verið í húsinu frá upphafi Heimaeyjargossins 23. janúar 1973 og starf- semi Sjúkrahússins flutti í nýtt húsnæði haustið 1974. Húsið gegndi hlutverki ráðhúss til haustsins 2016.“ Tillagan var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum. Hátíðarbókun Til máls tók Jóna Sigríður Guðmundsdóttir sem fór yfir sögu og hlutverk Kvenfélagsins Líknar og las upp eftir- farandi bókun bæjarstjórnar: „Kvenfélagið Líkn var stofnað þann 14. febrúar 1909, af þáverandi héraðslækni og 23 konum úr Vestmanna- eyjum. Félagið fagnar því 110 ára afmæli sínu í dag. Líkn hefur starfað óslitið frá þeim tíma sem það var stofnað og í dag telur félagið 119 konur sem allar sinna líknarstörfum fyrir félagið í sjálfboðavinnu. Það er Vestmannaeyjabæ gríðarlega mikilvægt að starfsrækt sé félag sem sinnir störfum í þágu samfélagsins með þeim hætti sem Kvenfélagið Líkn hefur gert undan- farna öld og áratug betur.“ Bæjarstjórnin þakkaði Kvenfélaginu Líkn og öðrum þeim sjálfboðaliðum sem komið hafa að starfi félagsins síðustu 110 árin, fyrir ómetanlegt framlag til samfélags- ins og óskar félaginu til hamingju með þennan merka áfanga. Hátíðarfundur bæjarstjórnar var haldinn fimmtudaginn 14. febrúar í bíósal Kviku. Fundurinn var sá 1543. í röðinni en þá voru liðin slétt 100 ár frá fyrsta fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Fund- inn sátu Elís Jónsson forseti bæjarstjórnar, Njáll Ragnarsson aðalmaður, Hildur Sólveig Sigurðardóttir aðalmaður, Trausti Hjaltason aðalmaður, Helga Kristín Kolbeins aðalmaður, Íris Róbertsdóttir aðalmaður og Jóna Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður. 2019 HÁtÍðarfundur á 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjabæjar 2019. Frá vinstri, Helga Kristín Kolbeins, Trausti Hjaltason, Njáll Ragnarsson, Íris Róbertsdóttir, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir og Elís Jónsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.