Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Síða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Síða 11
Fólkið09/15 Eldskírn hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsunum Á níunda áratugnum höfðu breytingar á greiðslukerfi sjúkrahúsanna, þ.e. þegar sjúkrahúsin fluttust af daggjöldum yfir á föst fjárlög, veruleg áhrif á innra starf sjúkrahúsanna. Við tók tímabil sem einkenndist af lokunum deilda þar sem deila þurfti fjármagninu niður á rekstur einstakra deilda til að ná endum saman í rekstri sjúkrahúsanna. Þetta var mikill stjórnunarlegur vandi í daglegum rekstri sjúkradeildanna. Hér stóðu tiltölulega nýútskrifaðir hjúkrunar- fræðingar vaktina við áður óþekktar aðstæður þar sem fjármagn var ár eftir ár flutt á milli deilda með öllu því raski sem þetta hafði á skipulag við mönnun vakta og þjónustu við sjúk- linga. Það voru hjúkrunar fræðingarnir sem voru á spítöl unum að skipuleggja og stýra rekstri deildanna. Sigurbjörg lýsir reynslu hjúkrunarfræðinganna á þessum áratug sem ákveðinni eldskírn í stjórnun og rekstri. Þegar kom fram á tíunda áratuginn var kominn fram nýr og öflugur hópur sem í vaxandi mæli lét að sér kveða í opinberri umræðu um heilbrigðismál. Sameining hjúkrunarfélaganna árið 1994 gerði þennan öfluga hóp hjúkrun- arfræðinga með mikla reynslu í stjórnun og rekstri enn sýnilegri en áður. „Þær voru búnar að ganga í gegnum þvílíka eldskírn og voru í raun og veru með rekstur sjúkrahúsanna á sínum herðum á meðan læknarnir höfðu orðið að bregðast við lokunum deilda með því að fara og vinna meira á stofum úti í bæ,“ segir Sigurbjörg. Með því er ekki sagt að það hafi ekki verið þungur róður fyrir læknana sem eftir voru á spítölunum, en hinn daglegi rekstur, skipulag þjónustunnar og mönnun deilda var fyrst og fremst á herðum hjúkrunarfræðinga. „Þessi þróun hjúkrunarfræðinganna sem stéttar er skólabókardæmi um áhrif samstöðu í opinberri stefnumótun.“ Hjúkrunarfræðingar voru á tíunda áratugnum orðin geysilega öflug stétt sem talaði einni röddu út á við. Á sama tíma og Á sama tíma og hjúkrunarfræðistéttin efldist urðu hagsmunir lækna ólíkari og ólíkari og ekki lengur hægt að tala um einn hóp lækna. Spítalinn var vígi hjúkrunarfræðinga. Þær voru ekki með sambærilegar útgönguleiðir og læknarnir.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.